Fara í efni
19.03.2026 Fréttir

Framkvæmdir ganga vel – vatn loksins farið að renna í sundlaugina

Deildu

Undirbúningur við sundlaugina gengur vel og nú styttist í að hægt verði að prufa nýja búnaðinn.
Í dag kemur fulltrúi frá Eflu til að ljúka síðustu verkhlutum sem eftir standa.

Vatn er farið að renna í laugina og vonir standa til að hægt verði að byrja að keyra kerfið um helgina eða strax eftir helgi. 

Vonir standa til að hægt verði að opna sundlaugina seinni partinn í næstu viku ef allt gengur upp.