Fara í efni
06.03.2020 Fréttir

Framkvæmdir á Boðaslóð

Nú á næstu vikum verður farið að laga gangstéttar og lagnir á Boðaslóðinni. 

Deildu

Um er að ræða gangstéttir, kanta, vatnslagnir, síma og ljósleiðaralagnir og því má reikna með að verkið taki svolítinn tíma.

Byrjað verður að skafa ofan af gangstéttum í næstu viku ef veður leyfir.

Óhjákvæmilega mun verða eitthvað rask við þessar framkvæmdir og biðjumst við velvirðingar á því.

Vestmannaeyjabær, Míla og HS veitur.