Á 434 fundi Umhverfis- og skipulagsráðs Vestmannaeyjabæjar samþykkti ráðið að veita Vestmannaeyjahöfn framkvæmdaleyfi vegna rannsóknarborhola og skurðar á afmörkuðu svæði á Haugasvæðinu. Rannsóknarborholurnar og skurðurinn eru mikilvægur þáttur í undirbúningi vegna mögulegs efnistökusvæðis á Haugasvæðinu.
Upplýsingar sem munu fást í framkvæmdinni eru mikilvægar til þess að hægt sé að meta betur gæði efnis í bergrunnum undir svæðinu og þar með minnka óvissu um grjótvinnsluspá fyrirhugaðrar námu sem nýtast skal til efnis í stórskipakants og landfyllingu norðan við Eiðið.
Framkvæmdaleyfið felur í sér leyfi fyrir borun á um 15 loftborholum um 10 metra á dýpt og gröft á rannsóknarskurði. Áætluð stærð rannsóknarskurðarins er 10-15 x 50 metrar og 10 metra dýpt. Staðsetning skurðarins innan svæðisins verður ákveðin byggt á niðurstöðum frá loftborholunum. Veitt er leyfi fyrir haugsetningu og geymslu á efninu við hlið rannsóknarskurðsins í allt að 12 mánuði á meðan nýting svæðisins sem efnisvinnslusvæðis skýrist.
Framkvæmdaleyfi þetta er gefið út skv. 2. mgr. 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Framkvæmdin er ekki í samræmi við gildandi Aðalskipulag Vestmannaeyja 2015-2035. Núverandi skilgreining svæðisins er óbyggt svæði (ÓB3) og sem opið svæði (OP3) þar sem gert er ráð fyrir hundasvæði. Svæðið nýtur ekki sérstakrar verndar skv. 61. gr. laga um náttúruvernd en efnistaka er óheimil skv. gildandi aðalskipulagi. Framkvæmdin er hins vegar mikilvægur þáttur til að meta gæði efnisins vegna fyrirhugaðrar aðalskipulagsbreytingar sem Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyjabæjar hefur samþykkt að hefja og fela í sér stærra efnistökusvæði á Haugasvæðinu.
Áætlað heldar efnismagn er 15.000 m3 og áætluð stærð námunnar 1500 m2. Framkvæmdin er því ekki tilkynningaskyld skv. 17. og 18. gr. og 1. viðauka Laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2021.
Framkvæmdaleyfið má finna á Skipulagsgátt mál nr. 156/2026 og opið er fyrir umsagnir til og með 2. mars 2026.

