Fara í efni
06.02.2026 Fréttir

Framkvæmdafréttir frá Íþróttahúsinu

Framkvæmdir við uppsetningu og tengingar á sandsíunum ganga vel. Unnið er að því að leggja lagnir að og frá síunum og áfram að dælubúnaði. Jafnframt er í smíðum ný rafmagnstafla sem mun hýsa stjórnbúnað og allar nauðsynlegar tengingar við stjórnbúnaðinn og dælur, ásamt skynjurum. 

Deildu

Verkið er komið vel á veg og samkvæmt núverandi verkáætlun er gert ráð fyrir að pípulagningarmenn ljúki sínum verkþætti um miðjan febrúar. Í kjölfarið munu rafvirkjar taka við og ganga frá rafbúnaði og tengingum.

Gert er ráð fyrir að verklok verði um næstu mánaðamót, gangi allt samkvæmt áætlun.

Auk framangreindra verka hefur verið útbúin ný skrifstofuaðstaða fyrir kennara, þar sem þeirra fyrri aðstaða var á svæði sem World Class er nú að stækka líkamsræktaraðstöðuna sína á. Þá er afgreiðslan einnig á lokametrunum og gert ráð fyrir að hún klárist fyrir lok næstu viku.