Fara í efni
14.11.2026 Fréttir

Fræðsluráð vill efla þjónustu við börn og stytta bið eftir greiningum

Fræðsluráð Vestmannaeyja hefur lýst yfir stuðningi við aðgerðaráætlun sem miðar að því að stytta biðtíma barna eftir greiningum og efla þjónustu við börn og fjölskyldur.

Deildu

Áætlunin felur meðal annars í sér tillögu um tímabundið viðbótarfjármagn á árinu 2027 til að fjölga sálfræðingum eða kaupa sérfræðiþjónustu með það að markmiði að vinna niður uppsafnaða biðlista.

Samhliða verður lögð áhersla á að endurskoða verklag og forgangsröðun greiningarbeiðna og efla snemmbæran stuðning við börn. Sérstaklega verður horft til þess hvernig mæta megi þörfum barna með ráðgjöf og viðeigandi stuðningsúrræðum án þess að formleg greining þurfi að liggja fyrir.

„Við viljum tryggja að börn og fjölskyldur fái þann stuðning sem þau þurfa á réttum tíma. Það er mikilvægt að bregðast við biðlistunum en jafnframt horfa til framtíðar og þróa þjónustuna þannig að hægt sé að grípa fyrr inn í. Börn eiga ekki að þurfa að bíða eftir formlegri greiningu til að fá viðeigandi aðstoð.“ segir formaður fræðsluráðs.

Fræðsluráð telur mikilvægt að ráðast í þessar umbætur og hefur falið sviðsstjóra fjölskyldu- og fræðslusviðs að fylgja tillögunni eftir við bæjarráð í tengslum við gerð fjárhagsáætlunar 2027.