Fara í efni
17.01.2011 Fréttir

Fræðsla um skaðsemi fíkniefna

Frá Grunnskóla Vestmannaeyja

Fræðsla um skaðsemi fíkniefna og hvað við getum gert til að sporna við fíkniefnaneyslu unglinga!
 
 
Deildu

 
Fræðslufundirnir verða í safnaðarheimili Landakirkju dagana 25. og 26. jan.
„Við viljum ræða við ykkur, þið verðið að ræða við börnin ykkar“
Nú er komið að árlegum forvarna- og fræðslufundum fyrir nemendur og foreldra á vegum Grunnskóla Vestmannaeyja og Marita forvarnarstarfs. Eins og í fyrra er fræðslan ætluð nemendum okkar í 7. 9. og 10. bekk. Nemendur í 7. og 9. bekk fá sína fræðslu á skólatíma, en nemendur 10. bekkjar mæta með forráðamönnum sínum á kvöldfund.
Forvarnarfulltrúinn sem um ræðir hefur nú komið til okkar nokkrum sinnum og orð hans hafa fallið í góðan jarðveg hjá nemendum okkar og þeim foreldrum sem hann hefur náð til. Við höfum hins vegar saknað þess að sjá fleiri foreldra nýta sér þetta fræðslutækifæri enda afar mikilvægt að geta fylgt fræðslu af þessu tagi eftir með umræðum heima fyrir.
Við hvetjum því alla sem eiga börn í 5. – 10. bekk til að koma á fræðslufundina og kynna sér það sem þar fer fram. Fundirnir eru þrír, hver fyrir sitt aldursstig. Þannig mæta foreldrar í 5. – 7. bekk, þriðjudagskvöldið 25. jan kl. 18:00 og foreldrar 10. bekkjar mæta, með börnum sínum, kl. 20:00 sama kvöld. Foreldrar í 8. – 9. bekk mæta svo miðvikudagskvöldið 26. jan. kl. 17:30.
Nánari upplýsingar um fræðslufundina er að finna á heimasíðu skólans www.grv.is og einnig fá aðstandendur í 5. – 10. bekk tölvupóst með kynningu á efni fundanna.
Hlakka til að sjá ykkur sem flest í safnaðarheimilinu
Fanney Ásgeirsdóttir, skólastjóri Grunnskóla Vestmannaeyja