Í tilefni Evrópskrar íþróttaviku var Vestmannaeyjabær í samstarfi við Veru lífsgæðasetur með fyrirlestur þar sem Thelma Rut Grímsdóttir, næringarfræðingur, og Tinna Tómasdóttir, talmeinafræðingur héldu fræðandi fyrirlestur um heilsu, vellíðan og mikilvægi þess að taka lítil skref í átt að betri heilsu.
Fyrirlesturinn bar yfirskriftina „Hvað ef eitt lítið skref gæti haft stór áhrif?“ Farið var yfir hvernig einfaldar breytingar í daglegu lífi geta haft jákvæð áhrif á heilsu og líðan. Meðal annars var fjallað um mikilvægi reglulegrar hreyfingar, fjölbreyttrar og næringarríkrar fæðu, góðs svefns og þess að setja sér raunhæf markmið sem hægt er að vinna að skref fyrir skref.
Megináherslan var á að heilsa þarf ekki að snúast um stórar eða flóknar breytingar. Lítil skref, sem henta hverjum og einum, geta með tímanum skilað miklu og stuðlað að betri heilsu og líðan.
Fyrirlesturinn var hluti af dagskrá Evrópskrar íþróttaviku #BeActive, þar sem lögð er áhersla á að hvetja fólk til að hreyfa sig og huga að heilsu sinni.




