Elstu nemendur í Kirkjugerði hafa verið dugleg að heimsækja fyrirtæki í bænum í sumar og tóku nokkrir foreldrar uppá því að bjóða öllum hópnum í heimsókn á sína vinnustaði.
Nemendur höfðu virkilega gaman af því að fræðast um hinar ýmsu atvinnugreinar og fóru meðal annar í heimsókn í Vöruhúsið, Heildsala Karls Kristmanns, Eldheimar, Laxey, Rán fimleikafélag, Eldheima, Húsasmiðjuna, Safnheima, Gullberg (vinnslustöðin) Sjóminjasafns Þórs Ragnars, Ráðhúsið, Slökkviliðið og lögreglustöðina svo fátt eitt sé nefnt.
Við í Kirkjugerði þökkum kærlega fyrir góðar móttökur. Nemendur og kennarar í Kirkjugerði voru alsæl með þessar heimsóknir og voru þær liður í því að nemendur þekki og fræðist um nærumhverfi sitt.













