Fara í efni
06.10.2016 Fréttir

Frábært framtak hjá Þjóðleikhúsi Íslands

Deildu
Þjóðleikhúsið bauð 5 og 6 ára börnum í Vestmannaeyjum á frumsýningu á sýninguna Lofthræddi örninn Örvar í sal Hvítasunnukirkjunnar. Lofthræddi örninn Örvar er einleikur fyrir börn um hugrekki og að sigrast á hindrunum í lífinu. Þjóðleikhúsið er að leggja land undir fót og mun á næstu mánuðum setja upp leiksýningar á fjölmörgum stöðum víðsvegar um landið. Þarna er Þjóðleikshúsið að rækta eitt af meginhlutverkum sínum að kynna list leikshússins fyrir börnum landsins. Vestmannaeyjabær þakkar Þjóðleikshúsinu og starfsmönnum þess þetta frábæra framtak og mælir eindregið með þessari leiksýningu sem leikin er af Oddi Júlíussyni leikara og leikstýrt af Birni Inga Hilmarssyni.

 

Takk fyrir Þjóðleikhús allra landsmanna!