Fara í efni
31.03.2026 Fréttir

Frábær skráning á sundnámskeið á vegum Vestmannaeyjabæjar

Deildu

Vegna lokunar á sundlauginni í vetur verður sett á laggirnar sundnámskeið fyrir börn í 1. - 4. bekk. Rúmlega 95 börn á aldrinum 6–10 ára eru skráð á sundnámskeiðið sem telst afar góð þátttaka og sýnir mikinn áhuga barna og forráðamanna.

Námskeiðið hefst strax að loknu páskaleyfi og mun standa yfir í nokkrar vikur. Stefnt er að því að hvert barn fái sex skipti með sundkennara á meðan á námskeiðinu stendur.
Sundkennari verður Svanhildur Eiríksdóttir sem hefur mikla reynslu af sundkennslu ungra barna.

Forráðamenn munu fá tölvupóst á allra næstu dögum með nánari upplýsingum um hópaskiptingu og tímasetningar.