Fara í efni
18.03.2026 Fréttir

Frábær árangur fulltrúa Féló í Stíl 2026

Stíll fór fram í Fagralundi laugardaginn 14. mars. 

Deildu

Þar tóku þátt félagsmiðstöðvar af öllu landinu og var það Féló sem stóð uppi sem sigurvegari. Það voru þær Elísabet Inga Þórisdóttir, Júlí Arna Sigurjónsdóttir og Aþena Rós Einarsdóttir sem skipuðu lið Féló og stóðu þær sig frábærlega og eru vel að sigrinum komnar. Þær hafa í vetur unnið að heildar hönnuninni, ásamt hári og förðun undir leiðsögn Sigríðar Unnar Lúðvíksdóttur kennara í GRV.