Fara í efni
07.09.2016 Fréttir

Forstöðumaður búsetukjarna fyrir fatlað fólk

Vestmannaeyjabær auglýsir laust til umsóknar starf forstöðumanns búsetukjarna fatlaðs fólks.

Starfshlutfall er 100% og mikilvægt er að viðkomandi geti hafið störf í síðasta lagi 1. október n.k.

Deildu
Verkefni og ábyrgðarsvið

• Forstaða búsetukjarna fyrir fatlað fólk við Vestmannabraut 58b.

• Mat á þörf einstaklinga fyrir þjónustu.

• Þátttaka í þverfaglegu samstarfi.

 

Hæfniskröfur

• Reynsla af starfi með fötluðum og aðstandendum þeirra.

• Menntun og/eða reynsla af stjórnunarstörfum er æskileg.

• Jákvæðni, sveigjanleiki og lipurð í mannlegum samskiptum.

 

Laun eru skv. kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.

Upplýsingar veitir Jón Pétursson, framkvæmdastjóri fjölskyldu- og fræðslusviðs Vestmannaeyjabæjar (jonp@vestmannaeyjar.is) í síma 488 2000.

 

Umsóknarfrestur er til og með 23. september 2016.

Umsækjendur eru beðnir um að skila inn umsóknum á netfangið jonp@vestmannaeyjar. Með umsókn þarf að fylgja starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningu fyrir hæfni í starfið.