Við erum ótrúlega ánægð með útkomuna og ekki síst með hversu vel hefur tekist að skapa fjölbreytt, fallegt og spennandi leiksvæði fyrir börnin.
Linda Mjöll Stefánsdóttir átti veg og vanda að hönnun og vinnu við lóðina. Daníel Hjörtur Sigmundsson hannaði og smíðaði kofann sem setur skemmtilegan svip á svæðið og Ragnar Þór Jóhannsson vann að framkvæmdum með tækin sín ásamt þeim Lindu og Daníel. Auk þeirra kom fjöldi starfsmanna og ungmenna frá Vestmannaeyjabæ að verkefninu og lagði sitt af mörkum við að gera þessa fallegu lóð að veruleika.
Vestmannaeyjabær fjármagnaði framkvæmdina og leikskólinn nýtti jafnframt styrk úr þróunarsjóði fræðsluráðs til verkefnisins. Efniviðurinn á lóðinni kemur víða að en lögð var áhersla á að nýta náttúrulegan og endurnýtanlegan efnivið þar sem börnin fá tækifæri til að skapa, rannsaka og leika sér á eigin forsendum. Meðal annars fengum við veglegan rekavið að gjöf frá hjónunum Önnu Svölu og Gauja og kunnum við þeim bestu þakkir fyrir. Einnig var ýmislegt úr kastalanum, sem kominn var til ára sinna, endurnýtt sem dæmi rennibrautin.
Síðastliðinn fimmtudag var lóðin formlega tekin í notkun við hátíðlega og skemmtilega stund. Fjölskyldum barna, kennurum, bæjaryfirvöldum og þeim fjölmörgu sem komu að framkvæmdinni var boðið til samveru þar sem við fögnuðum saman þessum mikilvæga áfanga. Helga Björk skólastýra sagði nokkur orð um undirbúningsvinnuna við verkefnið og þær hugmyndir sem kennarar hafa um útikennslu og fjölbreytta nýtingu lóðarinnar. Íris Róbertsdóttir bæjarstýra tók til máls, sem og Eyrún Haraldsdóttir, fulltrúi úr stjórn foreldrafélagsins, sem fjallaði meðal annars um mikilvægi útiveru barna og foreldra sem og þau gæði sem felast í góðu og örvandi útinámsumhverfi.
Það er einstaklega ánægjulegt að sjá börnin njóta nýju lóðarinnar og gefa henni líf með leik sínum og gleði. Lóðin býður upp á ótal möguleika til leiks, sköpunar, hreyfingar og könnunar og við hlökkum mikið til að sjá hvernig hún mun þróast áfram með börnunum á komandi árum.
Kennarar og börn í leikskólanum Sóla vilja færa öllum þeim sem komu að verkefninu kærar þakkir fyrir frábært samstarf, hugmyndir, vinnu og velvilja. Það þarf margar hendur til að skapa svona fallegt umhverfi fyrir börnin okkar og við erum afar þakklát fyrir þann mikla stuðning sem verkefnið fékk.

