Markmið fræðslunnar var að efla þekkingu foreldra á þeim áskorunum sem börn og ungmenni mæta í stafrænum heimi og hvernig best er að styðja þau til ábyrgrar og öruggrar netnokunar.
Þeir Haukur Brynjarsson og Skúli Bragi Geirdal fóru yfir þróun samfélagsmiðla, stafræn samskipti, friðhelgi einkalífs, persónuvern og fleira. Einnig fóru þeir yfir ýmis hagnýt verkfæri sem foreldrar geta nýtt til að ræða við börn sín um örugga netnotkun.
Mætingin var ágæt en þeir foreldrar sem mættu voru ánægðir með fræðsluna og sköpuðust góðar umræður í lok fræðslunnar.
Planið var að fara í heimsókn í Barnaskólann og hitta nemendur í 5. -10. bekk fyrr um daginn en það féll niður vegna samgangna. En þeir eru staðfastir að koma aftur í vor og hitta á nemendur.
Ýmis fróðleikur og verkfæri er á heimasíðu Netvís sem getur nýst foreldrum: https://netvis.is/
