Vestmannaeyjabær, óskar eftir tilboðum í utanhúsviðgerðir og endurbætur á fjölbýlihúsinu Foldahraun 42, í Vestmannaeyjum, samkvæmt útboðslýsingu.
Verkið skal unnið á þessu ári og á að ljúka eigi síðar en 31. október 2007.
Tilboðum skal skila á skrifstofu Umhverfis- og framkvæmdasviðs Vestmannaeyjabæjar að Tangagötu 1, en tilboðin verða opnuð þar, þriðjudaginn 30. maí 2006, kl. 14.00.
Merkja skal tilboðin: Foldahraun 42, Vestmannaeyjum. Útboð nr. 0341 - Tilboð.
Útboðsgögn á geisladiski er hægt að nálgast á skrifstofu Þjónustumiðstöðvar Vestmannaeyja að Heiðarvegi 14, Vestmannaeyjum frá og með mánudeginum 8. maí n.k.. Hægt er að kaupa prentuð útboðsgögn á 5.000.- kr., en þau þarf að panta.