Innviðaráðuneytið hefur veitt samþykki fyrir framlengingu á ríkisstyrktu áætlunarflugi fram til mánaðarmóta. Ráðuneytið mun í framhaldinu hafa samband við Nordlandair um áframhaldandi flug. Ákvörðunin kemur í kjölfar stöðunnar í Landeyjahöfn sem hefur haft veruleg áhrif á samgöngur milli lands og Eyja.
Með framlengingunni verður tryggt að íbúar, fyrirtæki og aðrir hafi áfram aðgang að öruggu og reglubundnu flugi á meðan unnið er að því að bregðast við aðstæðum í höfninni.
14.04.2026
Flugi verður framlengt til mánaðarmóta
