Sunnudaginn 27. september var loka viðburður Íþróttaviku Evrópu þar sem Vestmannaeyjabær bauð upp á fjölskyldugöngu um Stórhöfða undir leiðsögn Eyrúnar Haraldsdóttur.
Veðrið lék við þá sem mættu og var logn á einum vindasamasta stað landsins. Hópurinn byrjaði á að kíkja í fuglaskoðunarhúsið, niðurstaðan var að lundinn væri farin á heitari slóðir og engir flækingsfuglar væru á Stórhöfða.
Svo var lagt af stað í kringum Stórhöfða þar sem gengið var eftir slóða og fylgt eftir appelsínugulum stikum sem vísuðu leiðina. Börnin voru áhugasöm um Stórhöfða, smáeyjarnar í kring og öllu því sem bar við augu.
Kíkt var upp að húsinu við Stórhöfða, þar sem smá nestispása var tekin til að fá auka orku til að klára hringinn.
Duglegir krakkar sem drógu foreldra sína áfram og kláruðu allir gönguna með bros á vör.




