Fara í efni
20.05.2009 Fréttir

Fjölskyldu - og fræðslusvið Vestmannaeyjabæjar auglýsir eftir leikskólakennurum

Leikskóladeild 5 ára barna við Grunnskóla Vestmannaeyja.
Deildarstjórar og leikskólakennarar óskast á nýja leikskóladeild fyrir 5 ára börn sem hefur starfsemi sína haustið 2009 í Hamarsskólahúsinu.

Deildu

5 ára leikskóladeild við Grunnskóla Vestmannaeyja er nýtt námsframboð fyrir 5 ára leikskólabörn í Vestmannaeyjum sem tekur til starfa á haustmánuðum. Óskað er eftir áhugasömum og framsæknum leikskólakennurum til að veita þessari deild brautargengi í samráði við skólastjóra, leikskólafulltrúa, foreldra og skólayfirvöld. Nánari upplýsingar veitir Fanney Ásgeirsdóttir skólastjóri í síma 488-2300 eða 846-4797, netfang, fanney@grv.is, http://grv.is

Leikskólinn Kirkjugerði
Leikskólakennarar óskast í leikskólann Kirkjugerði. Leikskólakennaramenntun áskilin. Nánari upplýsingar fást hjá leikskólastjóra, Öldu Gunnarsdóttur í síma 488 2280, netfang: kirkjug@vestmannaeyjar.is, http://leikskolinn.is/kirkjugerdi

Leikskólinn Sóli
Leikskólakennarar óskast í leikskólann Sóla. Leikskólakennaramenntun áskilin Nánari upplýsingar fást hjá leikskólastjóra, Helenu Jónsdóttur í síma 488 2250, netfang, soli@vestmannaeyjar.is. http://leikskolinn.is/soli

Umsóknir með upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist til Fjölskyldu- og fræðslusviðs Vestmannaeyja, Ráðhúsinu. Umsóknarfrestur er til 3.júní 2009.

Guðrún Helga Bjarnadóttir leikskólafulltrúi.
ghb@vestmannaeyjar.is