Safnahelgin var formlega sett í Stafkirkjunni á fimmtudeginum þar sem meðal annars var kynnt fjölbreytt dagskrá sem er í undirbúningi fyrir árið 2027, þegar 400 ár verða liðin frá Tyrkjaráninu í Vestmannaeyjum. Sigurhanna Friðþórsdóttir kynnti fyrirhugaða viðburði fyrir hönd Söguseturs 1627 og Vestmannaeyjabæjar og leikkonan Elva Ósk sagði frá einleik sínum um Tyrkjaránið sem verður frumfluttur á næsta ári. Hafsteinn Þórólfsson gaf svo tóninn fyrir tónleika sína daginn eftir.
Hvalasöngur í kafi í Sundlaug Vestmannaeyja bauð gestum upp á skemmtilega upplifun í mergjuðu umhverfi. Þar var tónlist, hvalahljóðum, ljósmyndum og kvikmyndum úr sögu sundmenningar í Eyjum fléttað saman og sundlaugin nýtt á skemmtilegan og öðruvísi hátt.
Tónlist og bókmenntir í Eldheimum
Í Eldheimum var boðið upp á tvo ólíka en skemmtilega viðburði um helgina. Á laugardeginum hélt Hafsteinn Þórólfsson frábæra tónleika undir yfirskriftinni Eyjaperlur og fleiri lög ásamt glæsilegum hópi tónlistarfólks. Tónleikarnir voru sannkölluð tónlistarveisla þar sem kunnugleg lög og fallegur flutningur sköpuðu einstaka stemningu í Eldheimum. Á sunnudeginum var svo komið að bókmenntunum þegar Steinunn Sigurðardóttir las upp úr nýrri bók sinni.
Fjölbreytt dagskrá í Safnahúsi
Í Sagnheimumvar einnig líf og fjör um helgina. Þar kynntu fjórir rithöfundar nýjustu bækur sínar og gestir fengu tækifæri til að kynnast verkunum og höfundunum sjálfum. Á sunnudeginum hélt Guðný Ósk Laxdal, sem heldur úti Instagram-reikningnum Royal Icelander, fyrirlestur um norsku konungsfjölskylduna. Fyrirlesturinn var einstaklega áhugaverður og gaf gestum innsýn í líf og sögu konungsfjölskyldunnar. Hægt er að sjá fyrirlesturinn hér: Guðný Ósk Laxdal á Safnahelgi
Bókasafnið var heldur betur komið í hrekkjavökubúning á laugardeginum. Þar var boðið upp á völundarhús, sögustund í myrkri og grikk eða gott.
Dagskrárnar voru allar vel sóttar og áhuginn sýndi að Safnahelgin er ánægjulegur gleðigjafi í skammdeginu sem smám saman er að hellast yfir.























