Bæjarstjóri lagði fyrir bæjarráð drög að fjárhagsáætlun fyrir árið 2027. Bæjarráð vísaði drögunum til fyrri umræðu á bæjarstjórnarfundi sem haldin var síðar þann sama dag, miðvikudaginn 4. nóvember.
Rekstrarniðurstaða A -hluta er áætluð kr. 443.824.000 og samstæðunnar kr. 610.830.000
Jafnframt var þriggja ára fjárhagsáætlun fyrir árin 2028–2030 lögð fram og vísað til fyrri umræðu á sama bæjarstjórnarfundi.
Með umfjöllun bæjarstjórnar hefst formlegt ferli við afgreiðslu fjárhagsáætlana sveitarfélagsins fyrir komandi ár og áætlunartímabil.
Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri sagði megináhersluna vera á traustan rekstur og góða þjónusta við íbúa líkt og undanfarin ár. Gott samstarf og samstaða bæjarfulltrúa hefur einkennt vinnu áætlunarinnar. Mikil vinna liggur að baki slíkri áætlun og þakka ég starfsfólki bæjarins sérstaklega fyrir.
