Helstu verkefni og ábyrgð
- Skipulag á félagsmiðstöðvarstarfi fyrir börn og unglinga á aldrinum 10-16 ára.
- Leiðbeina bönum í leik og starfi.
- Samráð og samvinna við börn og unglinga.
- Starfsmenn standa vaktir í samráði við forstöðumann.
Hæfniskröfur:
- Vera orðin 18 ára.
- Hafa hreint sakavottorð.
- Vera brosmildir og jákvæðir með eindæmum.
- Frumkvæði og sjálfstæði í starfi.
- Góð færni í mannlegum samskiptum.
- Áhugi á starfi með börnum og unglingum
- Með velferð og þroska barna og unglinga að leiðarljósi
- Uppeldismenntun og reynsla af störfum á vettvangi tómstunda eða æskulýðsmála kostur.
Markmið félagsmiðstöðva er að þjálfa félags- og samskiptafærni barna og unglinga í gengum leik og starf. Markhópur félagsmiðstöðva er börn og unglingar á aldrinum 10-16 ára.
Vinnutími eru 5 - 8 tímar á viku. Stuttar vaktir seinni hluta dags, á kvöldin og takmarkað um helgar. Hentar vel fyrir fólk í skóla.
Launakjör eru skv. kjarasamningi Samband íslenskra sveitafélaga og starfsmannafélag Vestmannaeyja Stavey eða Drífanda stéttafélags.
Umsóknafrestur er til 1. september 2021.Viðkomandi þarf að geta hafið störf 6. September og þarf sakavottorð að fylgja umsókn.Nánari upplýsingar veitir Heba Rún Þórðardóttir í tölvupósti á netfanginu heba@vestmannaeyjar.is. Umsóknir berast á sama netfang.
Hvatning er til allra áhugasamra einstaklinga, óháð kyni, til að sækja um starfið skv. lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna nr. 15/2020 og lögum um kynrænt sjálfræði nr. 80/2019.
