Fara í efni
30.08.2022 Fréttir

Frístundaleiðbeinandi

Félagsmiðstöðin Vestmannaeyjum v/Strandveg auglýsir laust til umsóknar starf frístundaleiðbeinenda

Deildu

Markmið félagsmiðstöðva er að þjálfa félags- og samskiptafærni barna og unglinga í gegnum leik og starf. Markhópur félagsmiðstöðva eru börn og unglingar á aldrinum 10-16 ára. Vinnutíminn er 5 - 8 tímar á viku. Stuttar vaktir seinni hluta dags, á kvöldin og takmarkað um helgar. Hentar vel fyrir fólk í skóla.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Skipuleggja starf í félagsmiðstöð fyrir börn og unglinga á aldrinum 10-16 ára
  • Vera leiðbeinandi í leik og starfi

  • Samráð og samvinna við börn og unglinga

  • Vaktaskipulag í samráði við forstöðumann

Hæfniskröfur

  • Vera orðin 18 ára

  • Hafa hreint sakavottorð
  • Vera brosmildir og jákvæðir með eindæmum
  • Frumkvæði og sjálfstæði í starfi
  • Góð færni í mannlegum samskiptum
  • Hafa áhuga á að starfa með börnum og unglingum
  • Hafa velferð og þroska barna og unglinga að leiðarljósi
  • Uppeldismenntun og reynsla af störfum á vettvangi tómstunda eða æskulýðsmála er kostur

Nánari upplýsingar veitir Heba Rún Þórðardóttir í síma 488 2361 eða á netfangið: heba@vestmannaeyjar.is. Umsóknir berast á sama netfang.

Launakjör eru skv. kjarasamningi Samband íslenskra sveitafélaga, Stavey eða Drífanda stéttafélags.

Hvatning er til allra áhugasamra einstaklinga, óháð kyni, til að sækja um starfið skv. lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna nr. 15/2020 og lögum um kynrænt sjálfræði nr. 80/2019.

Umsóknarfrestur er til og með 18. september