Fara í efni
24.07.2023 Fréttir

Félagsleg liðveisla hlutastörf – sveigjanlegur vinnutími

Vestmannaeyjabær óskar eftir starfsfólki í félagslega liðveislu fyrir börn.

Deildu

Félagsleg liðveisla felur í sér persónulegan stuðning og aðstoð meðal annars til að efla einstakling félagslega og rjúfa félagslega einangrun, t.d. við að taka þátt í menningar- og félagslífi eins og að sækja tónleika, sýningar og íþróttaviðburði, fara í sund, á kaffihús eða spjalla saman eða að taka þátt í félagsstarfi. Allt eftir áhugasvið hvers og eins.

Um er að ræða hlutastarf, 8-16 tímar í mánuði sem getur hentað vel sem aukastarf með námi eða öðru starfi.

Mikilvægt er að viðkomandi hafi áhuga á að vinna með fólki og efla þeirra sjálfstæði og félagslegu tengsl.

Umsækjandi þarf að vera orðinn 18 ára og að hafa hreint sakarvottorð.


Nánari upplýsingar veitir Emma Bjarnadóttir í síma 488-2000 eða emmab@vestmannaeyjar.is

Sótt er um starfið í íbúagátt sem finna má á mínum síðum á heimasíðu Vestmannaeyjabæjar www.vestmannaeyjar.is 

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Stavey eða Drífanda og Launanefndar sveitarfélaga.

Hvatning er til allra áhugasama einstaklinga, óháð kyni, til að sækja um starfið skv. lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna nr 150/2020 og lögum um kynrænt sjálfræði nr. 80/2019.

Umsóknarfrestur er til og með 4. ágúst næstkomandi. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst