Félagsleg liðveisla felur í sér persónulegan stuðning og aðstoð sem einkum miðar að því að rjúfa félagslega einangrun, s.s. stuðning til að stunda íþróttir/líkamsrækt, fara á menningartengda viðburði og annað félagsstarf.
- Um er að ræða hlutastarf, 8 til 16 tímar í mánuði sem getur hentað vel sem aukastarf með námi eða öðru starfi.
- Mikilvægt er að viðkomandi hafi áhuga á að vinna með fólki og efla þeirra sjálfstæði og félagslegu tengsl.
- Umsækjandi þarf að vera orðinn 18 ára og að hafa hreint sakarvottorð.
Nánari upplýsingar veitir Björg Ólöf Bragadóttir, umsjónarþroskaþjálfi í síma 488 2000 eða bjorg@vestmannaeyjar.is
Umsóknir skulu almennt berast með rafrænum hætti í gegnum heimasíðu Vestmannaeyjabæjar
Laun eru greidd samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Stavey/Drífanda.
Hvatning er til allra áhugasama einstaklinga, óháð kyni, til að sækja um starfið skv. lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna nr 150/2020.
Umsóknarfrestur er til og með 28. júní næstkomandi. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
