Um er að ræða hlutastarf, 8-16 tímar í mánuði sem getur hentað vel sem aukastarf með námi eða öðru starfi. Einnig hægt að setja saman í stærra starfshlutfall.
Hægt er að nálgast umsóknareyðublöð í þjónustuveri Félagsþjónustunnar á Rauðagerði (norðan megin) eða á heimasíðu Vestmannaeyjabæjar.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Starfsmannafélags Vestmannaeyjabæjar (STAVEY) og Launanefndar sveitarfélaga.
Nánari upplýsingar veitir Lísa Njálsdóttir í síma 488-2620 eða lisa@vestmannaeyjar.is.
