Fara í efni
22.08.2018 Fréttir

Félagsleg liðveisla- hlutastörf

Óskum eftir starfsfólki af báðum kynjum í félagslega liðveislu fyrir börn og fullorðna. Félagsleg liðveisla felur í sér persónulegan stuðning og aðstoð sem einkum miðar að því að rjúfa félagslega einangrun, s.s. stuðning til að stunda íþróttir/líkamsrækt, fara á menningartengda viðburði og annað félagsstarf.

 
 
 
Deildu
Um er að ræða hlutastarf, 8-16 tímar í mánuði sem getur hentað vel sem aukastarf með námi eða öðru starfi. Einnig hægt að setja saman í stærra starfshlutfall.
 
Nánari upplýsingar veitir Lísa Njálsdóttir í síma 488-2620 eða lisa@vestmannaeyjar.is.
 
Hægt er að nálgast umsóknareyðublöð í þjónustuveri félagsþjónustunnar á Rauðagerði (norðan meginn) eða á heimasíðu Vestmannaeyjabæjar. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Starfsmannafélags Vestmannaeyjabæjar (STAVEY) og Launanefndar sveitarfélaga.