Fara í efni
05.03.2020 Fréttir

Fasteignagjöld fyrir árið 2020

Álagningarseðlar vegna fasteignagjalda fyrir árið 2020 eru einungis sendir til eldri borgara 67 ára og eldri og fyrirtækja. Aðrir fá álagningarseðilinn birtan rafrænt á island.is, er hann kominn þar inn.

Deildu

Hægt er að nálgast álagningarseðilinn á www.island.is undir „mínar síður“ Til að skrá sig inn á island.is er farið inn á mínar síður. Þar er val um innskráningu með rafrænu skilríki, skilríki í síma eða íslykli sem sótt er um á vefsíðunni http://www.island.is/islykill Álagningaseðilinn má finna undir linknum pósthólf. Veittur er 5% staðgreiðsluafsláttur af álögðum fasteignagjöldum ef greitt er til og með 7. febrúar nk. þeir sem ætla að staðgreiða vinsamlegast greiðið inn á reikning í Landsbankanum 0185-26-90 kt. 690269-0159. Aðrar upplýsingar vegna fasteignagjaldanna eru veittar í þjónustuveri Ráðhússins í síma 488-2000.