Hægt er að nálgast álagningarseðilinn á www.island.is undir „mínar síður“
Til að skrá sig inn á island.is er farið inn á mínar síður. Þar er val um innskráningu með rafrænu skilríki, skilríki í síma eða íslykli sem sótt er um á vefsíðunni http://www.island.is/islykill Álagningaseðilinn má finna undir linknum pósthólf.
Veittur er 5% staðgreiðsluafsláttur af álögðum fasteigngjöldum ef greitt er til og með 9. febrúar nk. Þeir sem ætla að staðgreiða vinsamlegast greiðið inn á reikning í Landsbankanum 0185-26-90 kt. 690269-0159. Aðrar upplýsingar vegna fasteignagjaldanna eru veittar í þjónustuveri Ráðhússins í síma 488-2000.
Bæjarráð hefur ákveðið að breyta fyrirkomulagi afsláttarkjara af fasteignagjöldum til handa elli- og örorkulífeyrisþegum fyrir árið 2019. Þeir einstaklingar sem njóta afsláttarins fá sendar útskýringar í bréfi með álagningarseðlunum.