Hægt er að nálgast álagningarseðilinn inn hjá www.island.is á „mínar síður“
Til að skrá sig inn á island.is er byrjað á því að fara inn á mínar síður. Þar er val um innskráningu með rafrænu skilríki, skilríki í síma eða íslykli sem sótt er um á vefsíðunni http://www.island.is/islykill. Álagningaseðilinn má finna undir linknum pósthólf.
Veittur er 5% staðgreiðsluafsláttur af gjöldunum ef greitt er fyrir 09. febrúar n.k. Þeir sem ætla að staðgreiða vinsamlegast greiðið inn á reikning í Landsbankanum 0185-26-90 kt. 690269-0159. Aðrar upplýsingar vegna fasteignagjaldanna eru veittar í þjónustuveri Ráðhússins í síma 488-2000.
Bæjarráð Vestmannaeyja samþykkir að fella niður fasteignaskatt á íbúðarhúsnæði hjá ellilífeyrisþegum 70 ára og eldri líkt og gert hefur verið undanfarin ár. Niðurfellingin nær til alls fasteignaskatts en sem fyrr verða áfram greidd þjónustugjöld af eignunum. Ekki verður þörf á að sækja um niðurfellinguna heldur verður skatturinn felldur niður hjá öllum 70 ára og eldri eftir að álagning hefur farið fram. Þeir einstaklingar sem njóta niðurfellingarinnar fá einnig sent bréf þess efnis með álagningarseðli.