Í gær, 22. nóvember, fagnaði Eyjagöng eins árs afmæli og hefur margt áunnist á þessu fyrsta ári.
Í tilefni afmælisins hefur félagið látið gera stutt myndband þar sem er farið yfir fyrsta starfsárið, allt frá stofnun félagsins í nóvember 2025 að rannsóknarborunum á Heimaey og Landeyjasandi og hafbotnsmælingum.
Eyjagöng vinna að rannsóknum vegna 18 km löngum jarðgöngum sem eiga að tengja Vestmannaeyjar við suðurströndina með varanlegum hætti.
Vestmannaeyjabær óskar Eyjagöngum til hamingju með daginn í gær.