Fara í efni
12.06.2023 Fréttir

Eygló opnar fyrir ljósleiðara í Áshamri og Bessahrauni

Í gær sendi Eygló fjarskiptafyrirtækjunum lista yfir þau hús í Áshamri og Bessahrauni sem eru nú tengd ljósleiðaraneti Eygló.

Deildu

Íbúar eftirtalinna húsa í Áshamri og Bessahrauni geta nú haft samband við sína þjónustuaðila og kannað hvort að þeir séu ekki tilbúnir með ljósleiðaratengingu fyrir þá.

Áshamar 17, 19, 23, 25, 29, 33, 35, 41, 43, 45, 47, 49, 51, 53, 55
Bessahraun 1A, 1B, 3A, 3B, 4, 5, 8, 9A, 9B, 10, 11A, 11B, 13, 12, 14, 15, 16, 18, 22, 24

Eygló ehf. mun reka ljósleiðarann sjálfann sem er grunnstoð kerfisins en fjarskiptafélögin koma með þann búnað sem til þarf.

Sala inn á kerfið er í höndum þeirra þjónustuveitna sem selja inn á kerfi Mílu og Tölvun ehf í Vestmannaeyjum.  Íbúar ofangreindra húsa eru hvattir til að hafa samband við sína internetveitu og kanna hvort að veitan sé ekki klár í að selja þeim tengingar inn á ljósleiðarakerfi Eyglóar.

Rétt er að taka það fram að Eygló ehf. sinnir einungis þessum þremur fjarskiptafélögum sem samið hafa við félagið. Öll notendaþjónusta og sala er í höndum fjarksiptafélaga á endursölumarkaði.