Fara í efni
30.10.2026 Fréttir

Endurskoðun bátakosts Vestmannaeyjahafnar

Framkvæmda- og hafnarráð hefur til skoðunar endurnýjun dráttarbáts Vestmannaeyjahafnar í ljósi aukinnar skipaumferðar og atvinnuuppbyggingar í Vestmannaeyjum, meðal annars vegna landeldis og mögulegrar fóðurverksmiðju.

Deildu

Núverandi dráttarbátur, Lóðsinn, er frá árinu 1998 og hefur 27 tonna dráttargetu. Skip sem koma til hafnarinnar hafa stækkað verulega og er nú talin þörf á dráttarbáti með 50–60 tonna dráttargetu. Til skoðunar hefur verið nýr dráttarbátur af gerðinni Damen ASD 2111.

Ráðið harmar að innviðaráðuneytið hafi ekki orðið við beiðni um fjármögnun í gegnum Hafnabótasjóð en fagnar því að málið verði skoðað við endurskoðun samgönguáætlunar. Ráðuneytið hefur jafnframt heitið samtali við dómsmálaráðuneytið og Landhelgisgæsluna um öryggis- og björgunarhlutverk bátsins.

Ráðið leggur áherslu á að öflugur dráttarbátur sé ekki aðeins nauðsynlegur fyrir starfsemi hafnarinnar heldur einnig mikilvægt öryggistæki við suðurströnd landsins. Bæði Landhelgisgæslan og Vegagerðin hafa undirstrikað mikilvægi slíks báts fyrir viðbragðs- og björgunargetu á svæðinu. Vestmannaeyjahöfn er eina höfnin milli Þorlákshafnar og Hornafjarðar sem getur hýst slíkan bát.

Ráðið telur endurnýjun dráttarbátsins brýnt öryggis- og innviðamál og mun áfram leggja áherslu á aðkomu ríkisins að fjármögnun verkefnisins.