Á ráðstefnunni kom fram að þótt raforkuverð til heimila á Íslandi sé enn hagstætt í alþjóðlegum samanburði hafi kostnaður rafkyntra heimila hækkað, einkum vegna flutnings- og dreifikostnaðar, opinberra gjalda og aukinnar fjárfestingaþarfar í innviðum. Jafnframt var bent á að laga- og regluverk kerfisins sé nú að mörgu leyti ekki í takt við breyttar aðstæður og framtíðarþarfir. Orkuskipti séu t.d. áskorun og kalli á breytt viðbragð og lausnir.
Samtök sveitarfélaga á köldum svæðum leggja áherslu á að sanngjarnt raforkukerfi sé líka byggðamál og jafnræðismál landsmanna. Íbúar og atvinnulíf á köldum svæðum eigi ekki að þurfa að búa við kerfi þar sem mismunandi gæði og aðstæður leiða til hærri byrða eða lakari stöðu en annars staðar þar sem aðgengi er að öðrum orkugjöfum. Aðgengi að raforku og kostnaður vegna hennar á að ráðast af sanngirni og jafnræði.
Niðurstaða ráðstefnunnar að mati stjórnar SSKS var skýr: Nauðsynlegt er að endurskoða umgjörð raforkukerfisins í heild, uppfæra leikreglur þess og tryggja að áframhaldandi uppbygging þess byggi á gagnsæi, sanngirni og jafnræði milli svæða.
Hér má nálgast þau erindi er voru flutt á ráðstefnunni.
Fréttin er tekin af heimasíðu Samtaka sveitafélaga á köldum svæðum.
