Byrjað er að setja saman spil og annan búnað sem var yfirfarinn og styttist í að sjáanlegar verði miklar framkvæmdir í dokkinni. Ný stjórntafla er komin upp í stjórnstöð en breytingar á stjórnkerfi gera mannvirkið allt miklu öruggara og minni hætta verður á mistökum. Mikill tími hefur farið í stálviðgerðir og sandblástur og málningu á spilum. Næsta skref er að ljúka við stálvinnuna og þá er hægt að fara að setja mannvirkið saman. Helstu verktakar hafa verið Skipalyftan ehf, Eyjablikk ehf, Íslenska Gámafélagið hf og Geisli en reiknað er með að verkinu ljúki í apríl. Verður þá hægt að taka skip á land til viðhalds og viðgerða í fyrsta skipti í tæp 5 ár.
19.11.2010
Endurbygging upptökumannvirkja Vestmannaeyjahafnar
Endurbygging upptökumannvirkja Vestmannaeyjahafnar er langt á veg komin.