Fara í efni
08.12.2010 Fréttir

Eldvarnavikan 2010.

Eins og undanfarin ár stóð Landssamband slökkviliðs og sjúkraflutningsmanna, fyrir eldvarnaviku í grunnskólum landsins. Sérstök áhersla var lögð á kynningu brunavarna fyrir 8 ára börn og fengu þau sérstakt heimaverkefni til úrlausnar með foreldrum sínum. Lausnir verða síðan metnar, dregið úr réttum lausnum og vegleg verðlaun veitt. ‘I tilefni vikunnar var börnum hér í Eyjum boðið í heimsókn á slökkvistöðina,
Deildu
þar sem farið var yfir helstu þætti í brunavörnum heimilisins.Þá var sýndur búnaður reykkafara og hvernig hann er undirbúinn fyrir reykköfun. Einnig kom formaður Lions færandi hendi gaf börnunum litabækur tengdar brunavörnum heimilisins.
 
Öll fá börnin gefins bók um slökkviálfana Loga og Glóð og illvirkjann Brennu-Varg en bókin heitir einmitt Brennu-Vargur og er spennusaga, en í henni eru líka góðir fróðleiksmolar fyrir börnin um eldvarnir.
 
‘I framhaldi af þessari heimsókn barnanna viljum við slökkviliðsmenn hvetja íbúa í Eyjum að yfirfara eftirfarandi: Reykskynjara, Slökkvitæki og eldvarnateppi. Einnig er áríðandi að fjölskyldan hugleiði flóttaleið ef eitthvað kemur uppá.
 
Slökkviliðið óskar bæjarbúum Gleðilegrar jóla og farsældar á nýju ári.