Í tilefni vikunnar var börnum hér í Eyjum boðið í heimsókn á slökkvistöðina, þar sem farið var yfir helstu þætti í brunavörnum heimilisins.Þá var sýndur búnaður reykkafara og hvernig hann er undirbúinn fyrir reykköfun. Einnig komu Lionsmenn færandi hendi gáfu börnunum litabækur tengdar brunavörnum heimilisins.
Öll fá börnin gefins bók um slökkviálfana Loga og Glóð og illvirkjann Brennu-Varg en bókin heitir einmitt Brennu-Vargur og er spennusaga, en í henni eru líka góðir fróðleiksmolar fyrir börnin um eldvarnir.
Í framhaldi af þessari heimsókn barnanna viljum við slökkviliðsmenn hvetja íbúa í Eyjum að yfirfara eftirfarandi: Reykskynjara, slökkvitæki og eldvarnateppi. Einnig er áríðandi að fjölskyldan hugleiði flóttaleið ef eitthvað kemur uppá.
Við slökkviliðsmenn óskum bæjarbúum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári.