Vestmannaeyjabær hefur lokið lögbundnu útboði á skólamat fyrir leik- og grunnskóla, frístund og Heimaey. Samkvæmt reglum um opinber innkaup var sveitarfélaginu skylt að bjóða þjónustuna út þegar gildandi samningur rann út.
Við útboðið barst eitt tilboð, frá Einsa Kalda, sem uppfyllti skilyrði útboðsgagna og var því samþykkt. Einsi Kaldi mun því áfram annast matarþjónustu samkvæmt nýjum samningi og var samninga þess efnis undirritaður af Einari Birni Árnasyni fyrir hönd Einsa Kalda og Írisi Róbertsdóttur, bæjarstjóra fyrir hönd Vestmannaeyjabæjar
Einsi Kaldi hefur sinnt þessari mikilvægu þjónustu fyrir Vestmannaeyjabæ frá árinu 2012. Á þeim tíma hefur fyrirtækið lagt áherslu á vandaða þjónustu og gott samstarf við skóla og tilteknar stofnanir sveitarfélagsins. Vestmannaeyjabær fagnar því að samstarfið haldi áfram og vill þakka fyrirtækinu fyrir farsælt samstarf undanfarin ár.
Matarþjónustan er mikilvægur þáttur í daglegri starfsemi skóla og stofnana sveitarfélagsins. Markmið Vestmannaeyjabæjar er að tryggja áfram örugga og vandaða þjónustu fyrir börn, starfsfólk og aðra sem nýta sér máltíðir á vegum sveitarfélagsins.
