Í upphafi framkvæmda mældist dýpi í hafnarmynninu um 3,7 metrar. Skipið hóf vinnu með svokallaðri jetting-aðferð, þar sem sjó er dælt niður í sjávarbotninn til að losa sand og færa hann frá hafnarmynninu.
Eftir aðra lægð sem gekk yfir svæðið aðfaranótt sunnudags hafði dýpið aukist og að morgni mánudags var það komið niður í 5 metra. Í dag mælist dýpið á bilinu 6–7 metrar.
Á mánudagsmorgni var hætt að nota jetting-aðferðina og dýpkun hafin með hefðbundnari hætti, þar sem straumur framan við höfnina reyndist ekki nægilega sterkur til að flytja efnið frá svæðinu. Skipið vinnur nú á svokölluðum buffer-svæðum með það að markmiði að draga úr því hversu hratt sandur safnast fyrir framan hafnarmynnið.
Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri segir að miklar vonir séu bundnar við aukin afköst hjá nýjum dýpkunaraðila og leggur áherslu á mikilvægi þess að allt verði gert til að tryggja siglingar í Landeyjahöfn enda eru þær gríðarlega mikilvægar fyrir samfélagið í Vestmannaeyjum.
