Fara í efni
07.06.2013 Fréttir

Drög að dagskrá Goslokahátíðar 2013

 Nú liggja fyrir drög að dagskrá goslokahátíðar 2013. Nánari opnunartímar sýninga verða auglýstir síðar. Þeir sem vilja koma á framfæri viðbót, ábendingum eða athugasemdum í dagskrá helgarinnar eru beðnir um að koma þeim á framfæri við fulltrúa goslokanefndar, Kristínu Jóhannsdóttur í síma 488-2000 eða á netfangið kristin@vestmannaeyjar.is. 
 
 
Deildu

DRÖG AÐ DAGSKRÁ

 

GOSLOKAHÁTÍÐIN 4.-7. JÚLÍ 2013

 

Fólk er hvatt til að skreyta hús sín og er litaskipting hverfa lögð af og fólki í sjálfvald sett að skreyta hús sín og götur að vild. 

Verðlaun verða veitt fyrir best skreytta húsið.

 

Vekjum athygli á goslokabingóinu en dregið verður úr þeim bingóspjöldum sem skilað er inn að helginni lokinni og er skilafrestur til miðvikudagsins 10. júlí 2013. Veglegir vinningar eru í boði og verða nöfn vinningshafa birt á heimasíðu Vestmannaeyjabæjar og í Eyjafréttum.

 

 

Miðvikudagur

Bæjarleikhús

Kl. 21.00

Tónleikar «Lög unga fólksins» Ungt söngfólk flytur vinsæla slagara frá árum pabba og mömmu, afa og ömmu.  Stjórnandi Birkir Þór Högnason. Aðgangseyrir 1.500 kr.

 

 

Fimmtudagur 

 

Eymundsson

Kl. 14-18.00

Spákonan Sunna Árnadóttir spáir í bolla og spil fyrir gesti og gangandi gegn vægu gosgjaldi.

 

Nýja Hraun/Gufugil

Kl. 14.30

„Að virkja óvininn“

Upplýsingaspjöld um hraunhitaveituna afhjúpuð í Gufugili, þar sem fyrsta virkjunin var byggð.

 

Miðstöðin, efri hæð

Kl. 15.00

Ljósmyndasýning – Heiðar Egils, Konný Guðjóns, Sísí Högna, Diddi Sig., Óskar Pétur, Ómar Eðvalds. 

 

Frímúrarahúsið

Kl. 16.00

Hulda Hákon opnar sýningu á verkum sínum.

Margo Renner sýnir glerlistaverk og skartgripi.

 

Kiwanis

Kl. 17.00

«40 ár og 40 myndir»  málverkasýning Bjartmars Guðlaugssonar

Með á sýningunni úrval verka eftir Ragnheiði Georgsdóttur

 

 Svölukot

Kl. 17.00

Opnun ljósmyndasýningar Harðar Sigurgeirssonar, «Horfinn heimur». Ljósmyndir frá 1950-1963.

 

Við Eldheima

Kl. 18.00  

Ganga upp að gíg Eldfells með Svabba Steingríms. og Óskari Svavars.  

 

Akóges

Kl. 18.00

Opnun myndlistarsýningar Bjarteyjar Gylfadóttur bæjarlistamanns Vestmannaeyja árið 2013.

 

Heiðarvegur 9/ Hús taflfélagsins

Kl. 20.00

Eldgosið 1973 og 40 árum síðar. Sigurfinnur Sigurfinnsson opnar myndlistarsýningu í húsi Taflfélags Vestmannaeyja að Heiðarvegi 9.

 

Bæjarleikhúsið

Kl. 20.00

Sýning á nýrri heimildarmynd, «Útlendingur heima- uppgjör við eldgos» í bæjarleikhúsinu.

 

Vinaminni

Kl. 21.00

Morð og músík. Spennusögur og tónlist blandað saman. Rithöfundarnir Árni Þórarinsson og Yrsa Sigurðardóttir lesa úr verkum sínum.

 

Höllin

Kl. 21.00 (húsið opnar kl. 20.00)

Eyjakvöld Blítt og létt hópurinn og Bjartmar og  Bergrisarnir, aðgangseyrir  kr. 1.973.-

 

Volcano Café

Tónleikar með Kalla kántrýsöngvara.

 

  

Föstudagur

 

Ráðhús Vestmannaeyja

Kl. 9.00

Fánar goslokahátíðar dregnir að húni

 

Golfklúbbur Vestmannaeyja

Kl. 10.00

Volcano open –  ræst út kl. 10.00 og kl. 17.00

 

Við Krossinn á Nýja Hrauni

Kl. 12.00

"Heit leikfimi í 40 ár"

Saga Leikfimi og líkamsræktar Eyjafólks í 40 ár og HotYoga sýning á sameiginlegri hönnun Eyjastelpnanna Selmu Ragnarsdóttur klæðskera og kjólameistara og Jóhönnu Karlsdóttur Hot yogakennara. Fólk hvatt til að koma fótgangandi. Ef veður verður óhentugt mun sýningin færast til kl. 14:00 á laugardeginum.

Baldurskró

Kl. 13.00 

Opnun myndlistarsýningar Ásmundar Friðrikssonar í Baldurskró. Athöfn vegna útgáfu bókar Ásmundar: ,,Ási Grási í Grænuhlíð, Eyjapeyi í veröld sem var”. Afrakstur myndasöfnunar Kiwanisklúbbsins Eldfells sýndur, «Eldgosið á Heimaey 1973».

 

Básar

Kl. 13.00

Opnun myndlistarsýningar Aldísar Gunnarsdóttur, “private view”.

 

Bæjarleikhúsið

Kl. 13.30

Sýning á heimildarmyndinni, «Útlendingur heima- uppgjör við eldgos».

 

Vigtarhús

Kl. 14.00

Kynning á Eldheimum. Margrét Kristín Gunnarsdóttir arkitekt hússins, Lilja Kristín Ólafsdóttir landslagsarkitekt og Axel Hallkell Jóhannesson sýningarhönnuður kynna Eldheima í máli og með myndum og módeli. 

 

Stakkagerðistún

Kl. 15.00

Formleg setningarathöfn goslokahátíðarinnar 2013

            - ávarp Elliða Vignissonar bæjarstjóra

            - ávarp Illuga Gunnarssonar mennta –og menningarmálaráðherra Íslands

            - flutningur goslokalagsins «Leiðin heim» – Bjartmar Guðlaugsson

            - tónlist og stuttar frásagnir frá gostímanum, Eyþór Ingi, «valdir Eyjamenn» og fl.

            - sérstakur gestur norski söngvarinn Julius Winger  

 

Kl. 16.00 

Krakkafjör á vegum Hvítasunnukirkjunnar, sápubolti og fleira skemmtilegt.

 

Kl. 18.00

Leikhópurinn Lotta sýnir Gilitrutt á Stakkagerðistúni. Aðgangseyrir.

 

Safnahús

Kl. 16.30

Móttaka og opnun sýningar á vegum Norska sendiráðsins.  Sýningin rifjar upp Noregsferð barna og unglinga frá Vestmannaeyjum í boði norska Rauða krossins sumarið 1973.

Sérstakur gestur á sýningunni verður norski fréttamaðurinn Gjeir Helljesen.

 

Skansinn

Kl. 17.00

Hafnarganga – bryggjurölt -  í tilefni 100 ára afmælis Vestmannaeyjahafnar. Gengið með leiðsögumanni frá Skansinum um bryggjurnar, inn í Friðarhöfn og til baka að Skipasandi, nýju geymslusvæði smábáta og staldrað við á nokkrum stöðum.

 

Net – á Eiðinu

Kl. 18.00

«Eld-rautt»  Ásta Vilhelmína Guðmundsdóttir sýnir kjólaskúlptúra og textílverk.  Fatahönnun Ástu, sem á ættir sínar að rekja til Eyja hefur notið mikilla vinsælda um árabil.

 

Skipasandur

Kl. 18.15

Upplýsingaskilti um gömlu slippana afhjúpað á Skipasandi.

 

Hafnarhúsið við Básaskersbryggju

Kl. 18.30

Myndasýning í tilefni þess að 100 ár eru liðin frá því að Alþingi samþykkti sérstök lög um Vestmannaeyjahöfn.

 

Bæjarleikhúsið

Kl. 18.30

Sýning á heimildarmyndinni, «Útlendingur heima- uppgjör við eldgos».

 

Höllin

Kl. 19.30 

Goslokahlaðborð Einsa Kalda í Höllinni. Borðapantanir í síma 698-2572.

 

Kaffi Kró

Kl. 20.00-22.00

Unglingatónleikar. Úrval ungra og efnilegra tónlistarmanna.

 

Íþróttahús

Kl. 20.30

Tónleikar Lúðrasveitar Vestmannaeyja og Fjallabræðra. Miðaverð 3.900 kr.  Forsala á Kletti.

 

Vinaminni

Kl. 21.00

Davíð, Siggi, Árný og valdir hippar taka lagið.

 

Kaffi Varmó

Kl. 22.30 – 03.00

Glaðbeittir Selfyssingar skemmta Eyjamönnum með spili og söng.

 

Kaffi kró

Kl. 23.30

Hið árlega Hlöðuball. Kapteinn Morgan og gestir leika fyrir dansi.

 

Eldfell

Kl. 00.00

 ,,Logar í austri” - bæjarbúar hvattir til að líta að Eldfelli.

 

Volcano Cafe

Kl. 00.00

Dj Atli leikur fyrir gesti.

 

Laugardagur

 

Golfklúbbur Vestmannaeyja

Kl. 8.00

Volcano Open, ræst út kl. 8.00 og 13.30. Keppendur mæti í skála klukkustund fyrir ræsingu.

 

Akóges

Kl. 11.00

Myndasýning af íbúum og húsum Kirkjubæjarbrautar fyrir gos í umsjón Ingu Dóru Þorsteinsdóttur og Gylfa Sigfússonar.

 

Nausthamarsbryggja

Kl. 11-13.00

Bryggjuveiðimót Sjóve fyrir börn á öllum aldri.  Allir þátttakendur fá glaðning og þátttökuverðlaun.

 

Íþróttamiðstöð

Kl. 11.30

Vestmannaeyjahlaupið. Þrjár vegalengdir í boði. 5, 10 og 21 km. Sameiginleg upphitun hefst kl. 11.30 og öll hlaup eru ræst af stað kl. 12.00. Þátttökuskráning er hafin á hlaup.is. Vægt þátttökugjald.

           

Slökkvistöð Vestmannaeyja

Kl. 11.00 – 16.00

Í tilefni 100 ára afmælis Slökkviliðs Vestmanneyja, verður slökkvistöðin opin.  Saga slökkviliðsins sýnd ásamt tækjum og tólum. Grillaðar pulsur og fleira meðlæti milli kl. 12:00-13:00.

 

Baldurskró

Kl. 12.00

Sögur af Vestmannabrautinni, Ásmundur Friðriksson, Ragnar Jónsson frá Látrum og Þór. Í. Vilhjálmsson frá Burstafelli fjalla um sögu götunnar í máli og myndum.

 

Friðarhafnarskýlið

Kl. 12.00

Ganga á Heimaklett í umsjá Bibba og Björgó, spurningakeppni á toppnum. 

 

Skansinn

Kl. 12.00- 16.00

„Vatnsveita Vestmannaeyja 45 ára“

Sögusýning í dæluhúsinu Skansi - Saga vatnsleiðslunnar í Veituhúsinu á Skansinum.

 

Eymundsson

kl. 13.00

Siggi á Háeyri les upp úr nýútkominni bók sinni, Undir hraun. 

 

Alþýðuhúsið

Kl. 13.00- 18.30

Húsin í Hrauninu

Aðilar sem bjuggu við eftirfarandi götur sem fóru undir hraun verða með sögustund í máli og myndum.

     13.00 Urðavegur

     15.00 Landagata

     17.00 Grænahlíð

 

Bárustígur

Kl. 14 – 16.00

Sparisjóðsdagurinn. Hefðbundin fjölskylduhátíð, tónlist, leikir, grill, andlitsmálning ofl.

 

Stakkagerðistún

Kl. 16.00

Barnaskemmtun á Stakkagerðistúni.

             -  Einar Mikael töframaður mætir í hörkustuði og framkvæmir ótrúlegar sjónhverfingar

 -  Upplestur úr nýútkominni barnabók Lóu Baldvinsdóttur um gosið

               - Latibær, íþróttaálfurinn og Solla Stirða mæta á svæðið

             -  vítaspyrnukeppni knattspyrnudeildar ÍBV.

 

Skipasandur

Kl. 21-23.00

Unglinga- og barnakvöldskemmtun í Coca Cola tjaldinu

     Töframaðurinn Einar Mikael heldur áfram með ótrúlegustu brögðin sín.

     Leikfélag Vestmannaeyja stígur á stokk með tónlistaratriði.

     Karnivalsstemmning með leikfélaginu.

     Sundfélag með poppsölu og Fimleikafélagið með flossölu

      “Holy moly” Vinsælasta atriði söngvakeppni framhaldsskólanna

     Hljómsveitin Vangaveltur leikur.

 

Kl. 23.30

Stuð í Pippkrónni, í nýjum króm og Coca Cola tjaldinu á Skipasandi fram eftir nóttu (Obbósí, Brimnes, Dans á Rósum, Eymenn, Lalli og Sigurrós, Bjartmar, Árni Johnsen og ýmsir gestir).

 

Volcano Café

Kl. 00.00

Dj Atli spilar fyrir mannskapinn. 

 

Sunnudagur

 

Landakirkja

Kl. 11.00

Samkirkjuleg messa – gengið að Stafkirkju, súpa og brauð á eftir.

 

Íþróttamiðstöð

Kl. 13-16.00

Goslokamótið í Laser Tag í íþróttamiðstöðinni fyrir 12-18 ára. Liðakeppni (5 í liði), þátttökuskráning hjá Tryggva Hjaltasyni  (tryggvi@inbox.com) þar þarf að koma fram liðsnafn og nöfn liðsmanna fyrir 4.júlí. Þátttakendur mæta á eigin ábyrgð.

 

Skansinn

Kl. 16.00

Kveðjuhóf goslokahátíðarinnar á Skanssvæðinu

- Ungir og efnilegir klassískir söngvarar flytja vel valin lög

Silja Elsabet, Alexander Jarl, Guðmundur Davíðsson ofl.

-          verðlaunaafhending fyrir best skreytta húsið

-          Ávarp formanns goslokanefndar, hátíðinni slitið

 

Bæjarleikhús

Kl. 18.00

"ART-TALK" "The weird girls project". 

Hluti af verkum listakonunnar Kitty von-Sometime verða sýnd og Margrét Erla Maack fjölmiðlakona spjallar við hana um verkin og fyrirhugaðar tökur í nýju vídeóverki í Eyjum.

 

Alþýðuhúsið

Kl. 21.00

Tónleikar Gísla Helgasonar og Bítladrengjanna, í blíðu og stríðu. Aðgangseyrir 2.000 kr. 

 

Á Breiðabakka

Litboltavöllur opinn frá 12-16 laugardag og sunnudag. Aðgangseyrir 3.500 kr., aldurstakmark 15 ára.

 

Skráning í bátana

Verið er að taka saman hverjir fóru með hvaða bát gosnóttina 1973. Skráning fer fram í Sagnheimum og á internetinu á vefslóðinni 1973ibatana.blogspot.com.