Fara í efni
23.11.2006 Fréttir

Deiliskipulagstillaga

Tillaga að deiliskipulagi fyrir íþrótta- og útivistarsvæði við Hástein. Bæjarstjórn Vestmannaeyja samþykkti á fundi sínum þann 15. nóv. s.l. að auglýsa breytingar á
Deildu

Tillaga að deiliskipulagi fyrir íþrótta- og útivistarsvæði við Hástein.

Bæjarstjórn Vestmannaeyja samþykkti á fundi sínum þann 15. nóv. s.l. að auglýsa breytingar á áður auglýstri tillögu að deiliskipulagi fyrir íþrótta- og útivistarsvæði við Hástein. Auglýst er skv. 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 með síðari breytingum.
Breytingin felst í meginatriðum í því að byggingarreitur fyrir fjölnota íþróttahús stækkar úr 70x70m. í 80x90m, lóðarstærðir og nýtingarhlutfall er fært inn á skipulagstillögu og tjaldsvæði sunnan íþróttamiðstöðvar er fellt út skv. áður samþykktri bókun sveitarstjórnar.
Tillagan verður til sýnis í safnahúsi Ráðshúströð, hjá umhverfis- og framkvæmdasviði að Tangagötu 1, 2. hæð og á vefsíðu Vestmannaeyjabæjar www.vestmannaeyjar.is, frá 23. nóv. 2006 - 4. jan. 2007. Nánari upplýsingar veitir skipulags-og byggingarfulltrúi Vestmannaeyja.
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera skriflegar athugasemdir/ábendingar við tillöguna sem skulu hafa borist umhverfis- og framkvæmdasviði Vestmannaeyjabæjar Tangagötu 1, eigi síðar 4. jan. 2007. Þeir sem ekki gera athugasemd við tillöguna teljast samþykkir henni.

Vestmannaeyjum, 16. nóvember 2006.
Umhverfis- og framkvæmdasvið Vestmannaeyjabæjar

Uppdráttur

Greinargerð