Um er að ræða fullt starf og er æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst á nýju ári. Deildarstjóri launadeildar hefur umsjón með launavinnslu og eftirliti með framkvæmd kjarasamninga í samvinnu við framkvæmdastjóra sviðanna.
Helstu verkefni:
- Launavinnsla, útreikningur, skráning og frágangur launa.
- Upplýsingagjöf til starfsmanna vegna útborgunar launa
- Samskipti við starfsmenn, lífeyrissjóði, stéttarfélög og opinbera aðila.
- Eftirlit með framkvæmd kjarasamninga.
- Uppfærsla og viðhald gagnagrunna tengdum launavinnslu
- Samráð og ráðgjöf til stjórnenda á sviði kjaramála, þ.m.t. þátttaka í undrbúningi launaáætlana
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Menntun sem nýtist í starfi.
- Góð þekking, færni og reynsla af launa- og mannauðskerfum (Navision, Oracle eða annarra sambærilegra kerfa).
- Góð þekking á kjarasamingum opinberra starfsmanna
- Þekking og reynslu af tímaskráningarkerfum (t.d. Vinnustund)
- Þekking á vaktaáætlunar – og viðverukerfum
- Kunnátta og færni í Excel og Word
- Jákvæni og lipurð í mannlegum samsktipum
Nánari upplýsingar um starfið:
Nánari upplýsingar um starfið veitir Angantýr Einarsson, framkvæmdastjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs í síma 488-2000 eða á netfangið: angantyr@vestmannaeyjar.is
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Starfsmannafélags Vestmannaeyjabæjar (STAVEY) og launanefndar sveitarfélaga.
Vestmannaeyjabær hvetur jafnt konur sem karla til að sækja um starfið.
Umsóknum ásamt menntunar- og starfsferilskrám skal skila til Bæjarskrifstofa Vestmannaeyja, Bárustíg 3, 900 Vestmannaeyjum og merkja „deildarstjóri launadeildar Vestmannaeyjabæjar“. Einnig er hægt að skila umsóknum á netfangið postur@vestmannaeyjar.is
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin