Fara í efni
14.02.2018 Fréttir

Deildarstjóri í dagdvöl aldraðra

Deildu

Á Hraunbúðum er laus til umsóknar 80 % staða deildarstjóra í dagdvöl aldraðra.  Dagdvöl aldraðra er stuðningsúrræði við þá sem að staðaldri þurfa eftirlit og umsjá til að geta búið lengur heima. Á Hraunbúðum er leyfi fyrir 10 dagdvalarrými þar sem einstaklingar koma inn yfir dagtímann á virkum dögum. 

Meginhlutverk starfsins er :

Sjá um og skipuleggja dagdvöl aldraðra

Hafa umsjón með félagsstarfi íbúa hjúkrunarheimilisins

 

Hæfnikröfur:

Áhugi og reynsla í vinnu með öldruðum

Góð samskiptahæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum

Menntun á sviði heilbrigðis- eða félagsvísinda góður kostur

 

Laun skv kjarasamningi viðkomandi við samband íslenskra sveitarfélaga. Umsóknarfrestur er til 8.mars nk.

 

Frekari upplýsingar veitir Sólrún Gunnarsdóttir deildarstjóri öldrunarmála á netfangið solrun@vestmannaeyjar.is eða í síma 488 2602