Fara í efni
12.07.2023 Fréttir

Deildarstjóri í dagdvölina Bjargið

Fjölskyldu- og fræðslusvið Vestmannaeyjabæjar auglýsir eftir deildarstjóra í 90% stöðu í dagdvölina Bjargið. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. september 2023

Deildu

Deildarstjóri leiðir faglegt starf dagdvalar, þróar og samhæfir innra starf með aukin þjónustugæði að leiðarljósi. Markmið dagdvalarinnar er að styðja aldraða einstaklinga til að búa sem lengst á eigin heimilum við sem eðlilegastar aðstæður og að rjúfa félagslega einangrun. Áhersla er lögð á að viðhalda og örva einstaklinga til bættrar andlegrar, líkamlegrar og félagslegrar heilsu.

Í dagdvölinni Bjarginu eru 10 almenn dagdvalarrými og 5 dagdvalarrými fyrir einstaklinga með heilabilun.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Umsjón með rekstri, starfsmannahaldi og daglegri starfsemi dagdvalar
  • Eftirlit með aðbúnaði og gæðum þjónustunnar
  • Stuðningur og ráðgjöf til þjónustuþega og aðstandenda
  • Upplýsingamiðlun og skráning í kerfi
  • Þátttaka í þróun ferla og umbóta í málefnum eldri borgara
  • Önnur verkefni í samráði við næsta yfirmann

Næsti yfirmaður er verkefnastjóri öldrunarþjónustu.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Menntun og starfsleyfi sem sjúkraliði
  • Reynsla af þjónustu við aldraða er æskilegt
  • Sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Góðir skipulagshæfileikar
  • Færni í samskiptum og jákvætt viðmót
  • Fagmennska og frumkvæði
  • Hæfni í þverfaglegu starfi
  • Góð almenn tölvukunnátta
  • Góð íslenskukunnátta í máli og riti

Upplýsingar veitir Thelma Rós Tómasdóttir verkefnastjóri öldrunarþjónustu í tölvupósti: thelma@vestmannaeyjar.is eða í síma 488 2048.

Umsækjendur eru beðnir um að skila inn umsóknum á netfangið thelma@vestmannaeyjar.is

Með umsókn þarf að fylgja ferilsskrá um fyrri störf og menntun ásamt kynningarbréfi þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningi fyrir hæfni í starfið. Afrit af prófskírteini og leyfisbréfi þurfa að fylgja umsókn.

Launakjör eru samkvæmt gildandi kjarasamningum við Samband íslenskra sveitarfélaga.

Hvatning er til allra áhugasama einstaklinga, óháð kyni, til að sækja um starfið skv. lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna nr 150/2020 og lögum um kynrænt sjálfræði nr. 80/2019.

Umsóknarfrestur er til 1. ágúst 2023.