Fara í efni
06.02.2026 Fréttir

Dagur leikskólans haldinn hátíðlegur í dag

Dagur leikskólans er haldinn hátíðlegur 6. febrúar ár hvert. Dagsetningin er ekki valin af tilviljun, því einmitt þennan dag árið 1950 stofnuðu frumkvöðlar leikskólakennara sín fyrstu samtök.

Deildu

Með því var stigið mikilvægt skref í átt að eflingu leikskólauppeldis á Íslandi og hefur sá dagur síðan borið með sér táknræna merkingu fyrir leikskólafólk um allt land.

Markmiðið með Degi leikskólans er að stuðla að jákvæðri umræðu um leikskólastarf og beina athygli samfélagsins að því faglega, skapandi og metnaðarfulla starfi sem unnið er í leikskólum landsins á hverjum degi. Þar leggja starfsmenn grunn að vellíðan, þroska og framtíð barnsins, og gegna þar lykilhlutverki í menntakerfinu.

Vestmannaeyjabær óskar öllu starfsfólki leikskólanna innilega til hamingju með daginn og þakkar fyrir ómetanlegt starf.