Fara í efni
02.07.2013 Fréttir

Dagskrá goslokahátíðar 2013

Kæru goslokahátíðargestir,
Velkomnir á 40 ára stórafmælishátíð goslokanna. Það er von okkar að þið njótið dagskránnar með okkur, með virkri þátttöku og gleði. Tryggjum að hin einstaka stemning og samkennd sem einkennt hefur hátíðina frá upphafi verði ráðandi sem fyrr.
 
Hér að neðan má sjá dagskrá helgarinnar en Goslokanefnd vill þakka þeim fjölmörgu einstaklingum, fyrirtækjum og félagasamtökum sem leggja hátíðinni lið og gera með því dagskránna eins glæsilega og fjölbreytta og raun ber vitni. 
Deildu
 Miðvikudagur

 

Bæjarleikhús

Kl. 21.00

Tónleikar Lög unga fólksins Ungt söngfólk flytur vinsæla slagara frá árum pabba og mömmu, afa og ömmu.  Stjórnandi Birkir Þór Högnason. Aðgangseyrir 1.500 kr.

 

Fimmtudagur            

 

Eymundsson

Kl. 14-18.00

Spákonan Sunna Árnadóttir spáir í bolla og spil fyrir gesti og gangandi gegn vægu gosgjaldi.

 

Miðstöðin, efri hæð

Kl. 15.00

Ljósmyndasýning – Heiðar Egils, Konný Guðjóns, Sísí Högna, Diddi Sig., Óskar Pétur, Ómar Eðvalds, Óskar Elías Sigurðsson og Tói Vídó. 

 

Frímúrarahúsið

Kl. 16.00

„Fuglar, haf, hús, fólk, skip, sólskin og fiskur” Hulda Hákon sýnir lágmyndir, höggmyndir og texta.

Margo Renner sýnir glerlistaverk og skartgripi.

 

Kiwanis

Kl. 17.00

40 ár og 40 myndir  málverkasýning Bjartmars Guðlaugssonar. Með á sýningunni verður úrval verka eftir Ragnheiði Georgsdóttur.

 

Svölukot

Kl. 17.00

Opnun ljósmyndasýningar Harðar Sigurgeirssonar, Horfinn heimur. Ljósmyndir frá 1950-1963.

 

Nýja hraun/Gufugil

Kl. 17.30

„Að virkja óvininn“

Upplýsingaspjöld um hraunhitaveituna afhjúpuð í Gufugili (vestan við Sorpu), þar sem fyrsta virkjunin var byggð.

 

Við Eldheima

Kl. 18.00 

Ganga upp að gíg Eldfells með Svavari Steingrímssyni og Óskari Svavarssyni. 

 

Akóges

Kl. 18.00

Opnun myndlistarsýningar Bjarteyjar Gylfadóttur bæjarlistamanns Vestmannaeyja árið 2013.

 

Hásteinsvöllur

Kl. 19.30

Leikur í Evrópukeppni. ÍBV mætir vinum okkar frá Færeyjum, HB Tórshavn. Takmarkaður miðafjöldi. Verð 2.500 kr. í nýju stúkuna, 2.000 kr. í gömlu stúkuna. Forsala er hjá Axel Ó og Skýlinu.

 

Höllin

Kl. 19.30

Goslokahlaðborð Einsa kalda „Hafið við Eyjar”. Borðapantanir í síma 698-2572.

Kl. 21.30 (húsið opnar kl. 20.30)

Eyjakvöld Blítt og létt hópurinn og Bjartmar og  Bergrisarnir, aðgangseyrir  kr. 1.973.-

 

Heiðarvegur 9 - Hús Taflfélagsins

Kl. 20.00

Eldgosið 1973 og 40 árum síðar. Sigurfinnur Sigurfinnsson opnar myndlistarsýningu í húsi Taflfélags Vestmannaeyja að Heiðarvegi 9.

 

Bæjarleikhúsið

Kl. 20.00

Sýning á nýrri heimildarmynd Sighvats Jónssonar og Jóhönnu Ýrar Jónsdóttur, Útlendingur heima- uppgjör við eldgos. Aðgangur ókeypis en miða er hægt að nálgast í Eymundsson frá 1. júlí. Takmarkað sætaframboð.

 

Vinaminni

Kl. 21.00

Morð og músík. Spennusögum og tónlist blandað saman. Rithöfundarnir Árni Þórarinsson og Yrsa Sigurðardóttir lesa úr verkum sínum.

 

Volcano Café

Kl. 22.00

Tónleikar með Kalla kántrýsöngvara. Aðgangseyrir 2.000 kr.

 

Föstudagur

 

Ráðhús Vestmannaeyja

Kl. 9.00

Fánar goslokahátíðar dregnir að húni.

 

Golfklúbbur Vestmannaeyja

Kl. 10.00

Volcano open –  ræst út kl. 10.00 og kl. 17.00

 

Við Krossinn á Nýja hrauni

Kl. 12.00

„Heit leikfimi í 40 ár”

Saga leikfimi og líkamsræktar Eyjafólks í 40 ár og HotYoga sýning á sameiginlegri hönnun Eyjastelpnanna Selmu Ragnarsdóttur klæðskera og kjólameistara og Jóhönnu Karlsdóttur Hot yogakennara. Fólk hvatt til að koma fótgangandi. Ef veður verður óhagstætt mun sýningin færast til kl. 14.00 á laugardeginum.

 

Baldurskró

Kl. 13.00 

Opnun myndlistarsýningar Ásmundar Friðrikssonar í Baldurskró.

Athöfn vegna útgáfu bókar Ásmundar: ,,Ási Grási í Grænuhlíð, Eyjapeyi í veröld sem var”. Afrakstur myndasöfnunar Kiwanisklúbbsins Eldfells sýndur, Eldgosið á Heimaey 1973.

 

Tónlistaskóli Vestmannaeyja

Kl. 13.00 - 17.00

Fjölbreytt úrval varnings í boði á handverksmarkaði fjölmargra einstaklinga.

 

Básar

Kl. 13.00

Opnun myndlistarsýningar Aldísar Gunnarsdóttur, “private view”.

 

Bæjarleikhúsið

Kl. 13.30

Sýning á heimildarmyndinni, Útlendingur heima- uppgjör við eldgos. Aðgangur ókeypis en miða er hægt að nálgast í Eymundsson frá 1. júlí. Takmarkað sætaframboð.

 

Vigtarhús

Kl. 13.30-15.00

Kynning á Eldheimum. Margrét Kristín Gunnarsdóttir arkitekt hússins, Lilja Kristín Ólafsdóttir landslagsarkitekt og Axel Hallkell Jóhannesson sýningarhönnuður kynna Eldheima í máli og með myndum og módeli. 

 

Stakkagerðistún

Kl. 15.00

Formleg setningarathöfn goslokahátíðarinnar 2013. Kynnir er Elva Ósk Ólafsdóttir.

     - Elliði Vignisson bæjarstjóri setur hátíðina og býður gesti velkomna.

     - ávarp Illuga Gunnarssonar mennta- og menningarmálaráðherra Íslands

     - flutningur goslokalagsins Leiðin heim – Bjartmar Guðlaugsson

     - tónlist og stuttar frásagnir frá gostímanum,

       Eyþór Ingi, valdir Eyjamenn og fl.

     - sérstakur gestur norski söngvarinn Julius Winger 

 

Kl. 16.00 

Krakkafjör á vegum Hvítasunnukirkjunnar. Sápubolti og fleira skemmtilegt.

Kl. 17.00

Leikhópurinn Lotta sýnir Gilitrutt á Stakkagerðistúni. Aðgangseyrir kr. 1.500,-.

 

Eymundsson

Kl. 16.30

Þórunn Kr. Emilsdóttir les upp úr bók sinni “Valsað milli vídda”

 

Safnahús

Kl. 16.30

Móttaka og opnun sýningar á vegum norska sendiráðsins.  Sýningin rifjar upp Noregsferð barna og unglinga frá Vestmannaeyjum í boði norska Rauða krossins sumarið 1973.

Sérstakur gestur á sýningunni verður norski fréttamaðurinn Geir Helljesen.

 

Skanslaut

Kl. 16.30

Vígsla á útigrilli sem Skógræktarfélag Vestmannaeyja gefur til almenningsafnota, kynning á Hraunskógi.

 

Slippurinn

Kl. 16.30

Opnun myndlistarsýningar Daníels Magnússonar, Huldu Hákon og Jóns Óskars.

 

Skansinn 

kl. 17.00

Hafnarganga – bryggjurölt – í tilefni 100 ára afmælis Vestmannaeyjahafnar. Arnar Sigurmundsson leiðir göngu frá Skansinum um bryggjurnar, inn  í Friðarhöfn og staldrað við á nokkrum stöðum og endað á Skipasandi kl. 18.15.

 

Net – Eiðinu

Kl. 18.00

Eld-rautt  Ásta Vilhelmína Guðmundsdóttir sýnir kjólaskúlptúra og textílverk.  Fatahönnun Ástu, sem á ættir sínar að rekja til Eyja hefur notið mikilla vinsælda um árabil.

 

Skipasandur

Kl. 18.15

Upplýsingaskilti um gömlu slippana afhjúpað á Skipasandi.

 

Hafnarhúsið við Básaskersbryggju

Kl. 18.30

Myndasýning, mest  gamlar ljósmyndir  af skjávarpa og lifandi myndir  í tilefni 100 ára afmælis Vestmannaeyjahafnar.

 

Bæjarleikhúsið

Kl. 18.30

Sýning á heimildarmyndinni, Útlendingur heima- uppgjör við eldgos.

 

Íþróttamiðstöð Vestmannaeyja

Kl. 20.30

Tónleikar Lúðrasveitar Vestmannaeyja og Fjallabræðra. Miðaverð 3.900 kr. Forsala í Kletti.

 

Vinaminni

Kl. 21.00

Davíð, Siggi, Árný og valdir hippar taka lagið.

 

Kaffi Varmó

Kl. 22.30 – 03.00

Glaðbeittir Selfyssingar skemmta Eyjamönnum með spili og söng.

 

Kaffi kró

Kl. 23.30

Hið árlega hlöðuball. Kapteinn Morgan og gestir leika fyrir dansi.

 

Prófasturinn

Kl. 00.00

Bandið „Allt í einu” leikur fyrir dansi.

 

Eldfell

Kl. 00.00

 ,,Logar í austri” - bæjarbúar hvattir til að líta að Eldfelli.

 

Volcano Cafe

Kl. 00.00

Dj Atli spilar fyrir mannskapinn.     

Laugardagur

 

Golfklúbbur Vestmannaeyja

Kl. 8.00

Volcano Open, ræst út kl. 8.00 og 13.30. Keppendur mæti í skála klukkustund fyrir ræsingu.

 

Akóges

Kl. 11.00

Myndasýning af íbúum og húsum Kirkjubæjarbrautar fyrir gos í umsjá Ingu Dóru Þorsteinsdóttur og Gylfa Sigfússonar.

 

Nausthamarsbryggja

Kl. 11.00-13.00

Bryggjuveiðimót Sjóve fyrir börn á öllum aldri.  Allir þátttakendur fá glaðning og þátttökuverðlaun.

 

Slökkvistöð Vestmannaeyja

Kl. 11.00 – 16.00

Í tilefni 100 ára afmælis Slökkviliðs Vestmannaeyja, verður slökkvistöðin opin.  Saga slökkviliðsins sýnd ásamt tækjum og tólum. Grillaðar pulsur og fleira meðlæti milli kl. 12.00-13.00.

 

Íþróttamiðstöð

Kl. 11.30

Vestmannaeyjahlaupið. Þrjár vegalengdir í boði. 5, 10 og 21 km. Sameiginleg upphitun hefst kl. 11.30 og öll hlaup eru ræst af stað kl. 12.00. Þátttökuskráning er hafin á hlaup.is. Vægt þátttökugjald.

               

Baldurskró

Kl. 12.00

Sögur af Vestmannabrautinni, Ásmundur Friðriksson, Ragnar Jónsson frá Látrum og Þór Í. Vilhjálmsson frá Burstafelli fjalla um sögu götunnar í máli og myndum.

 

Friðarhafnarskýlið

Kl. 12.00

Ganga á Heimaklett í umsjá Bibba og Björgó, spurningakeppni á toppnum. Olís gefur vinningshafa glaðning. 

 

Skansinn

Kl. 12.00- 16.00

Vatnsveita Vestmannaeyja 45 ára. Sögusýning í dæluhúsinu Skansi - Saga vatnsleiðslunnar í Veituhúsinu á Skansinum.

 

Hús taflfélagsins Heiðarvegi 9

Kl. 13.00

Taflmót Sparisjóðsins og Taflfélags Vestmannaeyja.

 

Eymundsson

Kl. 13.00

Siggi á Háeyri les upp úr nýútkominni bók sinni, Undir hraun.

 

Alþýðuhúsið

Kl. 13.00- 18.30

Húsin í hrauninu

Íbúar sem bjuggu við neðangreindar götur sem fóru undir hraun verða með sögustund í máli og myndum.

     13.00 Urðavegur

     15.00 Landagata

     17.00 Grænahlíð

 

Bárustígur

Kl. 14.00 – 16.00

Sparisjóðsdagurinn. Hefðbundin fjölskylduhátíð, tónlist, leikir, grill, andlitsmálning ofl.

 

Stakkagerðistún

Kl. 16.00

Barnaskemmtun á Stakkagerðistúni. Kynnir er Ævar Örn Kristinsson.

     - Einar Mikael töframaður mætir í hörkustuði og framkvæmir ótrúlegar sjónhverfingar

     - Upplestur úr nýútkominni barnabók Lóu Baldvinsdóttur um gosið

     - Latibær, íþróttaálfurinn og Solla stirða mæta á svæðið með fjörugt atriði í boði  Eimskips og Herjólfs.

     - Vítaspyrnukeppni ÍBV þar sem börnum gefst kostur á að spreyta sig gegn mark- og leikmönnum ÍBV.

 

 

Skipasandur

Kl. 21.00

Útigrill og stemning hjá Slippnum.

 

 

Skipasandur

Kl. 21.00-23.00

Unglinga- og barnakvöldskemmtun í Coca Cola tjaldinu. Kynnir er Ævar Örn Kristinsson.

     - Töframaðurinn Einar Mikael heldur áfram með ótrúlegustu brögðin sín.

     - Leikfélag Vestmannaeyja stígur á stokk með tónlistaratriði.

     - Karnivalstemmning með Leikfélaginu.

     - Sundfélagið með poppsölu og Fimleikafélagið með flossölu

     - “Holy moly” Vinsælasta atriði söngvakeppni framhaldsskólanna

     - Hljómsveitin Vangaveltur leikur ásamt Unu Þorvalds.

 

Kl. 23.30

Stuð í Pippkrónni, í nýjum króm og Coca Cola tjaldinu á Skipasandi fram eftir nóttu (Kapteinn Morgan, Brimnes, Dans á rósum, Eymenn, Bjartmar, Árni Johnsen og ýmsir gestir).

 

BK gler

Kl. 23.00-00.00

Tónleikar á þaki BK glers. Hljómsveitin Blind Bargain leikur.

 

Prófasturinn

Kl. 00.00

Bandið „Allt í einu” leikur fyrir dansi.

 

Volcano Café

Kl. 00.00

Dj Atli spilar fyrir mannskapinn innandyra og trúbbarnir Fannar, Hjálmar og Dagur spila utandyra. 

 

Sunnudagur

 

Landakirkja

Kl. 11.00

Samkirkjuleg messa – gengið að Stafkirkju, súpa og brauð á eftir.

 

Íþróttamiðstöð

Kl. 13.00-16.00

Goslokamótið í LaserTag í Íþróttamiðstöðinni fyrir 12-18 ára. Liðakeppni (5 í liði), þátttökuskráning hjá Tryggva Hjaltasyni (tryggvi@inbox.com) þar þarf að koma fram liðsnafn og nöfn liðsmanna fyrir 4. júlí. Þátttakendur mæta á eigin ábyrgð. 900 grillhús gefur vinningshöfum glaðning.

 

Skansinn

Kl. 13.00

Kveðjuhóf goslokahátíðarinnar og móttaka áhafnarinnar á Húna II.

      -   Ungir og efnilegir klassískir söngvarar flytja vel valin lög. Silja Elsabet, Alexander Jarl, Guðmundur Davíðsson, Reggie

         Óðins.

    -   Verðlaunaafhending fyrir best skreytta húsið

    -   Formaður goslokanefndar, Hildur Sólveig Sigurðardóttir, flytur ávarp og slítur  hátíðinni.

 

Hásteinsvöllur

Kl. 17.00

Stórleikur ÍBV-KR í 8 liða úrslitum Borgunarbikarsins. Aðgangseyrir 1.500 kr.

 

Bæjarleikhús

Kl. 19.00

„ART-TALK” „The weird girls project”.

Hluti af verkum listakonunnar Kitty von-Sometime verða sýnd og Margrét Erla Maack fjölmiðlakona spjallar við hana um verkin og fyrirhugaðar tökur á nýju vídeóverki í Eyjum.

 

Skansinn

Kl. 20.00

Áhöfnin á Húna II. leikur tónlist fyrir gesti til styrktar björgunarsveitum landsins. Miðaverð er 1.500 kr. Í áhöfninni á Húna II. eru tónlistarmennirnir Jónas Sig, Lára Rúnars, Ómar Guðjónsson, Guðni Finnsson, Arnar Gíslason og Mugison.

 

Alþýðuhúsið

Kl. 21.00

Tónleikar Gísla Helgasonar og Bítladrengjanna, í blíðu og stríðu. Aðgangseyrir 2.000 kr.

 

Sýningartímar listsýninga:

 

Básar

Aldís Gunnarsdóttir: Opið föstudag 13.00-18.00, laugardag og sunnudag 14.00-18.00.

 

Akóges

Bjartey Gylfadóttir: Opið föstudag 14.00-17.00, laugardag og sunnudag 14.00-18.00.

 

Hafnarhúsið við Básaskersbryggju

Myndasýning: Opið föstudag 18.30-21.00, laugardag og sunnudag 11.00-16.00.

 

Vigtarhús:

Kynning á Eldheimum: Opið föstudag 13.30-15.00, laugardag og sunnudag 13.00-16.00.

 

Hús Taflfélagsins Heiðarvegi 9

Sigurfinnur Sigurfinnsson. Opið föstudag, laugardag og sunnudag frá 13.00-18.00.

 

Miðstöðin

Samsýning ljósmyndara: Opið föstudag, laugardag og sunnudag frá 13.00-18.00.

 

Frímúrarasalurinn

Hulda Hákon og Margo Renner: Opið föstudag, laugardag og sunnudag frá 13.00-18.00.

 

Kiwanis

Bjartmar Guðlaugsson og Ragnheiður Georgsdóttir: Opið föstudag, laugardag og sunnudag frá 13.00-18.00.

 

Baldurskró

Ásmundur Friðriksson: Opið föstudag, laugardag og sunnudag frá 13.00-18.00.

 

Net – Eiðinu

Ásta Vilhelmína Guðmundsdóttir: Opið föstudag, laugardag og sunnudag frá 13.00-18.00.

 

Svölukot

Ljósmyndasýning Harðar Sigurgeirssonar: Opið fimmtudag 17.00-22.00 og föstudag, laugardag og sunnudag 13.00-18.00.

 

Tónlistarskóli Vestmannaeyja

Handverksmarkaður, opið föstudag, laugardag og sunnudag 13.00-17.00.

 

Pizza67

Ljósmyndasýning Óskars Elíasar  Óskarssonar og Óskars Björnssonar. Opið á afgreiðslutíma staðarins.

 

900 grillhús

Guðmundur Sigfússon sýnir ljósmyndir á afgreiðslutíma veitingastaðarins.

 

Slippurinn

Myndlistarsýning Daníels Magnússonar, Huldu Hákon og Jóns Óskars, opin á afgreiðslutíma staðarins.

 

Sæheimar

Ljósmyndir og eldgos, opnunartími frá 11.00-17.00 fimmtudag til sunnudags.

 

Aðrir endurteknir viðburðir

 

Eymundsson

Spákonan Sunna Árnadóttir spáir í bolla og spil fyrir gesti og gangandi gegn vægu gosgjaldi. Föstudag 14.00 – 18.00 og laugardag 14.00 – 17.00.

 

Bæjarleikhúsið

Sýning á nýrri heimildarmynd Sighvats Jónssonar og Jóhönnu Ýrar Jónsdóttur ,,Útlendingur heima - uppgjör við eldgos. Sýningar einnig á föstudag kl. 13.30 og 18.30.

 

Á Breiðabakka

Litboltavöllur opinn frá 12.00-16.00 laugardag og sunnudag. Aðgangseyrir 3.500 kr., aldurstakmark 15 ára.

 

 

Skráning í bátana

Verið er að taka saman hverjir fóru með hvaða bát gosnóttina 1973. Skráning fer fram í Sagnheimum og á internetinu á vefslóðinni 1973ibatana.blogspot.com.

 

      Langur laugardagur hjá kaupmönnum bæjarins!

 

l Fólk er hvatt til að skreyta hús sín og er litaskipting hverfa lögð af og fólki í sjálfvald sett að skreyta hús sín og götur að vild. 

Verðlaun verða veitt fyrir best skreytta húsið.

 

l Vekjum athygli á goslokabingóinu en dregið verður úr þeim bingóspjöldum sem skilað er inn að helginni lokinni og er skilafrestur til miðvikudagsins 12. júlí 2013. Veglegir vinningar eru í boði og verða nöfn vinningshafa birt á heimasíðu Vestmannaeyjabæjar og í Eyjafréttum.

 

l Merki goslokahátíðarinnar verður til sölu í Eymundsson og í Sagnheimum. Auk þess sem sölubörn munu selja merkin. Verð eingöngu 1.000 kr. Goslokanefnd hvetur Eyjamenn og gesti til að kaupa merki hátíðarinnar.

 

l Nefndin áskilur sér rétt til breytinga á dagskrá ef þörf þykir.

 

Dagskrá helgarinnar er aðgengileg á www.vestmannaeyjar.is og í snjallsímum og spjaldtölvum á m.siminn.is/goslok.

 

Birgir Nielsen, Helga Hallbergsdóttir, Hildur Sólveig Sigurðardóttir,

Kristín Jóhannsdóttir og Margrét Rós Ingólfsdóttir.