Vilt þú njóta dagsins með ungum börnum?
Í Vestmannaeyjum er þörf fyrir fleiri dagforeldra í heimahúsum til að gæta yngstu Vestmannaeyinganna. Ef til vill er það eitthvað fyrir þig? Starf sem dagforeldri í heimahúsum felur í sér spennandi og krefjandi verkefni með ungum börnum.
Fyrir hverja?
Til að gerast dagforeldri þarft þú að hafa ríka ábyrgðartilfinningu og geta veitt börnunum góða umönnun, öryggi og hlýju. Þú þarft ekki að hafa aðra menntun en námskeið fyrir dagforeldra og taka þátt í skyndihjálparnámskeiðum og öðrum námskeiðum og fræðslu sem boðið er upp á hverju sinni.
Er þetta eitthvað fyrir þig?
Frekari upplýsingar um störf dagforeldra veitir Guðrún Helga Bjarnadóttir daggæslu- og leikskólafulltrúi á bæjarskrifstofu Vestmannaeyja, Ráðhúsinu í síma 488 2000, netfang ghb@vestmannaeyjar.is
Umsóknareyðublöð er hægt að nálgast í þjónustuveri Ráðhússins.