Fara í efni
13.09.2022 Fréttir

Dagdvöl aldraðra óskar eftir starfsmanni í ræstingar

Auglýst er eftir starfsmanni í dagdvöl aldraða. Um er að ræða hlutastarf 50% unnin á dagvinnutíma 12:30-16:30 alla virka daga.

Deildu

Dagdvöl er stuðningsúrræði við þá sem búa í heimahúsum en þurfa að staðaldri eftirlit og umsjá til að geta búið áfram heima. Í dagdvöl er boðið upp á einstaklingsbunda þjónustu byggða á mati á þörfum og byggist á hjálp til sjálfshjálpar. Lagt er upp á mikilvægi þess að virkja einstaklinga í dagdvöl félagslega og í athöfnum daglegs lífs. Markmiðið er að einstaklingum líði vel og fái þá þjónustu sem þau þurfa.

Helstu verkefni:

· Dagleg þrif

· Frágangur og þrif eftir matar- og kaffitíma

· Umsjón með þvotti

· Að halda viðverustöðum snyrtilegum

Hæfniskröfur

- Áhugi á að vinna með öldruðum.

- Góð hæfni í mannlegum samskiptum.

- Hreint sakavottorð

- Samviskusemi, frumkvæði og stundvísi

Umsóknarfrestur er til og með 28. September 2022

Laun og kjör skv. kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga og STAVEY/Drífandi.

Umsóknum ásamt ferilskrá skal skilað á netfangið ragnheidurg@vestmannaeyjar.is merkt ,,Starfsmaður í dagdvöl aldraðra“.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Ragnheiður Geirsdóttir, deildarstjóri dagdvalar í síma 488-2610 / 841-8881 eða ragnheidurg@vestmannaeyjar.is

Hvatning er til allra áhugasamra einstaklinga, óháð kyni, til að sækja um starfið skv. lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna nr. 15/2020 og lögum um kynrænt sjálfræði nr. 80/2019.