Vikan 16.-22. febrúar
Unnið var að innleiðingu á GoPro, nýju mála- og skjalakerfi sem Vestmannaeyjabær er að taka í notkun. Kynning á kerfinu fór fram og vinnustofur haldnar fyrir stjórnsýsluna.
Undirbúningsfundur haldinn fyrir bæjarráð en þeir eru ávallt haldnir í sömu viku og bæjarráð fundar og sækja þá undirbúningsfundinn allir bæjarráðsfulltrúar, bæjarstjóri og sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs.
Vikulegur sviðsstjórafundur var á sínum stað þar sem farið var yfir stöðuna á þeim málum sem eru í gangi.
Stjórnarfundur hjá Sveitarfélögum á Köldum svæðum. Unnið var að undirbúningi fyrir opinn orkufund samtakanna sem fer fram á 18. mars. Ber hann yfirskriftina: Raforkureikningurinn: Hver hagnast - hver borgar?
Fundur var haldinn í bæjarráði þar sem meðal annars var fjallað um samgöngumál og ósk um framlengingu á flugi til Vestmannaeyja. Þá var einnig fjallað um endurnýjun tímabundins samnings um rekstur heilsuræktar. Fundargerðina má sjá hér
Hagræðingarhópur fyrir fjölskyldusvið og stjórnsýslu- og fjármálasvið hélt sinn fyrsta fund þar sem vinnan var kortlögð. Í hópnum sitja fulltrúar fjölskyldu- og tómstundaráðs, fulltrúar bæjarráðs ásamt embættismönnum viðkomandi sviða.
Bæjarráð fundaði með Kviku banka sem sér um eignasafn Vestmannaeyjabær.
Ég flutti erindi fyrir Kiwanismenn þar sem ég fór yfir stöðuna í Vestmannaeyjum og átti með þeim ánægjulega kvöldstund og gott samtal.

Á föstudagsmorgni var fundur í stjórn Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga þar sem lokahönd var lögð á dagskrá og undirbúning fyrir sjávarútvegsfund samtakanna á Akureyri.
23. febrúar-1. mars
Þetta var bæjarstjórnarvika og fór mikill tími í undirbúning bæjarstjórnarfundar.
Vikulegur sviðsstjórafundur haldinn.
Vatnshópur Vestmannaeyjabæjar fundaði með fulltrúum innviðaráðuneytisins til að ræða NSL 4 almannavarnalögn og næstu skref í viðræðum við ríkið. Ríkið hefur staðið við viljayfirlýsingu um 800 m.kr. framlag, en áætlað er að kostnaður við almannavarnalögnina, fullkláraða, nemi um 3.000 m.kr. Ábyrgð á almannavörnum hvílir á ríkinu og nauðsynlegt er að ríkið ræki það hlutverk til fulls.
Fundur var haldinn með fulltrúum Þekkingarsetursins vegna hugsanlegra breytinga á umgjörð Fab Lab í Vestmannaeyjum.
Bæjarstjórnarfundur var haldinn þar sem meðal annars var rætt um samgöngumál og stöðuna varðandi dýpkun í Landeyjahöfn og framlengingu á ríkisstyrktu flugi. Fundargerð fundarins er aðgengileg hér.
Stjórnarfundur Lánasjóðsins var haldinn og jafnframt unnið að undirbúningi aðalfundar sjóðsins.
Við fengum ánægjulega heimsókn í Ráðhúslundinn frá leikskólabörnum á Sóla. Þau máluðu vatnslitamyndir og borðuðu hádegismat.

Skóladagur Hamarsskóla var haldinn í vikunni og var sérstaklega ánægjulegt að heimsækja minn gamla vinnustað og sjá hversu mikið er þar í gangi.

Vikunni lauk með fyrsta þorrablóti ÍBV, sem var afar vel heppnað og greinilega komið til að vera.
2. - 8. mars
Ég hóf vikuna á því að skrifa undir nýtt skipulag fyrir baðlón og hótel á Skansinum og Skanshöfða. Um er að ræða afar ánægjulegt og spennandi verkefni sem mun auka fjölbreytni ferðaþjónustu í Vestmannaeyjum til muna.
Mikið gekk á í samgöngumálum Eyjamanna í vikunni vegna bilana í dýpkunarskipinu Álfsnesi. Fundir voru haldnir með Vegagerðinni þar sem því var komið skýrt á framfæri að staðan væri óboðleg. Ég veitti fjölmörg viðtöl vegna málsins og fjölluðu allir landsdekkandi fjölmiðlar um stöðuna.
Þá ræddi ég við þingmenn og ráðherra og kom kröfum Eyjamanna skýrt á framfæri. Mikilvægt er að halda þeim sem bera ábyrgð og hafa valdið við efnið.
Hér má finna viðtölin Viðtal í Bítínu á Bylgjunni og Síðdegisútvarpið á RÚV
Aukafundur í bæjarráði var haldinn vegna stöðu dýpkunarmála. Fundagerðina má sjá hér

Á miðvikudag var sjávarútvegsfundur Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga sem haldinn var á Akureyri. Ég opnaði fundinn og stýrði pallborðsumræðum. Atvinnuvegaráðherra, Hanna Katrín Friðriksson, fjallaði um lagareldi.
Þá var erindi frá Byggðastofnun um byggðafestu og sjávarútveg og Vegagerðin kynnti málefni hafna og hafnabótasjóða. Frétt um fundinn er aðgengileg hér.
Ég sótti Iðnþing 2026 sem bar yfirskriftina „Finnum samhljóminn“. Þingið var mjög fjölmennt og gagnlegt.

Ég flaug heim sama dag og veitti viðurkenningar fyrir þátttöku í Stíl-hönnunarkeppni á vegum Samfés.
Þar voru kynntir afar glæsilegir kjólar og hugmyndir að baki þeim. Var vinna allra þátttakenda til fyrirmyndar. Hópurinn sem sigraði verður Féló fulltrúi í Stíl þann 14. Mars. nk.

Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri