Fyrsta vikan á nýju ári fer alltaf frekar rólega af stað en í ár var umræða um orkumál fyrirferðarmikil. Vegna stöðunnar funduðu fulltrúar sveitarfélagsins með forstjóra Landsnets til að fara yfir þær breytingar og áhyggjur sem eru af nýrri gjaldskrá
8.–9. janúar – Opinber heimsókn og óvænt heimsókn
Ég fylgdi forsetahjónunum eftir í opinberri heimsókn þeirra til Eyja sem endaði í okkar einstöku þrettándahátíð í stórkostlegu veðri. Alltaf er gaman að brjóta upp daginn og ég fékk einnig óvænta heimsókn frá leiksólastúlkum frá Sóla sem gladdi mig mikið.
13. janúar – Fundur með orkumálaráðherra
Ég fundaði með orkumálaráðherra vegna orkumálsins. Ræddum við flutningskerfið og að gjaldskrá raforkuflutninga verði að þróast með fyrirsjáanlegum hætti og fyrirkomulagið megi ekki grafa undan orkuskiptum og samkeppnishæfni.
Ráðherra hefur sett af stað vinnu með óháðum sérfræðingum og raforkueftirlitinu sem miðar að því að skerpa á þessu.
14. janúar – Samgönguáætlun, bæjarráð og rekstur Herjólfs
Bæjarstjórn fundaði með þingmönnum Suðurkjördæmis vegna samgönguáætlunar. Bæjarfulltrúar komu á framfæri athugasemdum sem eru fjölmargar við þessa samgönguáætlun.
Bæjarráð fundaði og hér má finna fundargerðina.
Bæjarráð fundaði með Vegagerðinni seinni partinn vegna samningsins um rekstur Herjólfs. Vegagerðin hefur óskað eftir að samningur verði yfirfarinn.
15. janúar – Menntamál og opinn fundur Eyjagagna
Ég átti gott samtal við menntamálaráðherra Ingu Sæland um menntamál í ráðuneytinu. Síðar sama dag flaug ég svo með Mýflugi til Eyja og tók þátt í opnum fundi hjá Eyjagögnum. Mjög upplýsandi og flottur fundur hjá félaginu sem var vel sóttur.
16. janúar – Viðurkenningar og stjórnsýsluendurskoðun
Fréttapýramídinn á vegum Eyjasýnar var afhentur í Eldheimum og var gaman að sækja þá athöfn. Það er alltaf jafn ánægjulegt að sjá fólk og fyrirtæki fá viðurkenningu fyrir sitt framlag til samfélagsins.
Stjórnsýsluendurskoðun Vestmannaeyjabæjar fór fram og er það í tengslum við ársreikning hvert ár.
21. janúar – Undirbúningur orkufunda og fundur bæjarstjórnar
Stjórnafundur í SSKS fór fram og meðal mála var undirbúningur orkufunda sem haldinn verður 13. mars og hefur ráðherra staðfest þátttöku í fundinum.
Fyrsti fundur bæjarstjórnar á nýju ári fór fram, fundargerðina er að finna hér.
22. janúar – Fyrsti forstöðumannafundur ársins
Fyrsti forstöðumannafundur ársins hjá Vestmannaeyjabæ var haldinn og var farið yfir ýmiss málefni, s.s. nýja málstefnu og nýjan innri vef fyrir starfsfólk o.fl.
23. janúar – Goslok, sjávarútvegur og listasýning
Stjórnarfundur Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga var haldinn þar sem meðal annars var farið yfir umsögn samtakanna fyrir Samráðsgátt vegna lagareldis- frumvarps atvinnuvegaráðherra. Einnig skipulag sjávarútvegsfundar sem verður haldinn verður 4. mars á Akureyri og hefur atvinnuvegaráðherra staðfest komu sína.
Opnun listasýningar í Sagnheimum sem var mjög áhugaverð og er tenging við gos og jarðhræringar.
Þann 23. janúar er ég alltaf jafn þakklát þeim sem stóðu í stafni og gerðu það mögulegt að Heimaey byggðist upp aftur. Hugrekki, æðruleysi, dugnaður og kraftur Eyjamann í þessum aðstæðum mun aldrei gleymast.
Íris Róbertsdóttir
bæjarstjóri










