Vestmannaeyjabær hefur tekið í notkun nýja íbúagátt sem gerir það að verkum að nú fara allar nýjar umsóknir um byggingarleyfi, sem og önnur tengd gögn og umsýsla, í gegnum byggingargátt Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar (HMS).
Með innleiðingu byggingargáttarinnar er ferlið orðið einfaldara, gagnsærra og öruggara. Umsækjendur skila inn gögnum á einum stað, fá yfirsýn yfir stöðu mála og geta átt rafræn samskipti við sveitarfélagið og aðra aðila sem koma að málinu.
Unnið er að því að setja eldri mál inn í Byggingargátt HMS og verður tilkynnt um leið og þeirri vinnu er lokið en þau gögn sem geta ekki beðið skal skila inn til byggingafulltrúa á netfangið rannveig@vestmanneyjar.is
Við hvetjum alla sem hyggjast sækja um byggingarleyfi að kynna sér gáttina og skila inn umsóknum rafrænt í gegnum hún. Frekari upplýsingar og aðgangur að byggingargáttinni má finna á vef HMS: www.hms.is.